Ægir

Årgang

Ægir - 01.05.1918, Side 5

Ægir - 01.05.1918, Side 5
II. á Árni Byron. I dag er liðið ár síðan Árni sál. Byron iézt. Þessa atburðar var getið með örfá- um orðum í sumum blöðunum hér, en vendilega hefir verið þagað um æviatriði hans hingað til; er þetta þó nokkuð kjm- legt, svo mikill siður sein það er nú orð- inn í þessu Iandi að rita langa æviminn- ingu um hvern mann lálinn. — Getur verið, að hér valdi nokkru um, hve ó- greinileg var fregnin um lát hans, og eigi hefir mönnum hér orðið siðan neittkunn- ugra um þetta. Það eitt er víst, að kaf- bátur grandaði skipi Árna, en hann vildi ekki gefast upp og lenda í fangavist í Þj’zkalandi; íórust honum og þannig orð, er hann var á ferð hér síðast, en það var litlu áður en hann lézt, að eigi mundi hann láta takast lifandi. Fjuúr þvi tók hann nú þann kostinn að snúast til varn- ar, þótt vopnlaus væri, og leikurinn harla öjafn, enda íór svo að lokum, sem vænta niátti, að kafbáturinn kom skoti á skip- ið og sökti því, og ætla menn þó, að Árni væri áður fallinn. — Nokkrir skip- verjar Árna sál. komust af, en ekki hafa frásagnir þeirra, ef nokkrar eru, um þenna hörmulega atburð náð hingað til lands. Árni var kornungur maður, er hann lézt, fæddur 11. júni 1879 að Hofi á Kjal- arnesí; voru foreldrar hans: Eyjólfur Bjarnason hóndi, er þar hjó, og kona hans, Sigriður Sigui'ðardóttir, merkishjón, Nr. 5. en félítil. Ólst Árni upp hjá foreldrum sínum, unz hann var fimtán ára, en þá fluttist hann suður hingað, og átti heima í Ráðagerði á Seltjarnarnesi um næstu fimm ár. Tók hann þá að stunda sjó á þilskipum, og þótti brátt hinn ágætasti sjómaður, frábærlega verklaginn og mik- ilvirkur, en kapp og kjarkur að sama skapi. Sautján ára gekk hann í sjómanna- skólann hér, en mun ekki hafa verið þar nema einn vetur, og gerðist þá stýrimað- ur hjá Jóni sál. Árnasyni hálfbróður sínum fyrst um sinn. Sumarið 1899 var Árni háseti á botnvörpungi, er átti danskt félag, sem hér hafði þá nokkur þess kyns skip við veiðar, en um haustið sigldi hann til Englands, og átti þar heimili æ síðan, lengst af í Hull. Þegar er Árni kom til Englands, réð hann sig á brezkan botnvörpung; lærðust hon- um öll störf greiðlega, er honum var hvað eina í augum uppi, er hann sá eða heyrði, og hefi eg heyrt gamla skipstjóra þarlenda, formenn Árna þessi f^Tstu ár hans ytra, mjög róma hreysti hans og hvatleik í öllu, og þá eigi síður hitt, hve ósérhlífinn hann var. Eg hefi stundum heyrt á það minst hér, að botnörpungasldpstjórar enskir séu býsna illa að sér í bóklegum fræð- um, þeim sem hver formaður á að kunna, og satt er það, ef til vill, að þeiru eru skemur að bóklegu námi en t. d. skip- stjóraefni hér. Hins er sjaldnar getið hér, sem þó er satt, og þess um vert, að ÆGIR. MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS |. ] Reykjavík. Maí, 1918.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.