Ægir

Årgang

Ægir - 01.06.1918, Side 22

Ægir - 01.06.1918, Side 22
102 ÆGIR 6. gr. Frá því að fulltrúi Bandamanna hefir samþykt kaup á lýsinu, mega líða 30 dagar þangað til borgun fer fram eða 30 dagar frá því að vottorð matsmanna hefir borist fulltrúanum, en vexði vörunni skipað út fyrir þann tíma, mun andvirðið verða greitt strax á eftir. 7. gr. Skylt er seljendum að flytja lýsið um borð, greiða tolla og önnur gjöld kaup- anda að kostnaðarlausu, en á meðan lýsinu er eigi skipað út, hvilir vátryggingai-- skylda á seljendum, á ábyrgð landsstjórnar, en kaupandinn endurgreiði vátrygging- argjaldið hlutfallslega fyrir þann tíma, sem fram yfir er 30 daga frá því kaup gerðust í hvert skifti. Sömuleiðis er það skylda seljanda, að geyma lýsið í sínum húsum meðan þvi er ekki skipað út, en seljendur fá borgaðan geymslukostn- að, hlutfallslega fyrír þann tíma, sem fx-am yfir er 30 daga frá því að kaupin gerð- ust, og skal það reiknað eflir því sem venja er til, eða eftir samkomulagi. Kröfur um endurgreiðslu á slíkum gjöldum skulu sendar útflutningsnefndinni tafarlaust, þegar varan er komin um borð. 8. gr. Alt meðalalýsi, hvort heldur er gufubrætt eða hrátt, skal vera i blikktunnum með trjehylki utan yfii', eins og venja er til, en sjeu þær eigi til, má nota eikai-- tunnur, gei’ðar úr steinolíutunnum, enda sjeu þær áður grandgæfilega gufuhreinsað- ar og þvegnai’. Einnig má nota steinoliuföt, ef eins er farið með þau, en gæta verð- ur þess vandlega að þessum reglum sje nákvæmlega fylgt, svo meðalalýsið engan veginn geti skemst vegna þess, að ílátin hafi ekki verið nógu vandlega hreinsuð og undirbúin. Á meðalalýsi sem verður selt í eikartunnum eða fötum, verður verðið 10 krónum lægra fyi’ir hver 105 kilo án umbúða. 9. gr. Matið, sem fram fer hjer á landi gildir að eins til bráðabirgða. Fullnaðarmat fer fram þá er lýsið er komið til Bretlands, af fulltrúa Bandamanna þar, en þang- að til greiðir útflutningsnefndin alt að 50°/o af verði meðalalýsisins og alt að 75% af andvirði iðnaðarlýsisins. 10. gr. Meðalalýsi fyrsta flokks skal vera framleitt úr nýrri þorskalifur. í því má alls ekki vera neitt efni sem ekki getur orðið að sápu. Súrinn má ekki vera meira en 2V2°/o. Það skal vera hvítleitt eins og viðurkent sýnishorn nr. A. I. A. Annars flokks meðalalýsi, þar með talið hrátt meðalalýsi, má framleiða úr ýmiskonar fisklifur. 1 því má helst ekki vera neitt efni sem ekki getur orðið að sápu, og sje umfram V/^/o í því af efni sem ekki geta orðið að sápu, verður dregið frá verðinu hlutfallslega. Súrinn má ekki vera meiri en 9°/o. Litur þess sje samkvæmt viðurkendu sýnishorni.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.