Ægir

Volume

Ægir - 01.08.1918, Page 12

Ægir - 01.08.1918, Page 12
132 ÆGlR og kaldn sjávarins (Pólsstraumsins) lcngra úli. Samfara rauðátunni er líka stærri »áta«, smávaxin krabbadýr, en miklu stærri vexti þó en rauðátan, sem ncfnd eru augnasíli, silögn, agga, kríli o. 11. eins og áður er sagt. Pað var sagt frá því i fyrsta kaila, að bilinn i maí er undir 4° C. á svæðinu frá ísafjarðardjúpi að Papev. í júní cr 4°-jafnhitalínan laus við landið, o: komin norður og austurfyrir land og þá er hitinn kominn yfir 5° alstaðar, nema á svæðinu milli Sléttu og Breiðdalsvíkur. í júlí er hann alslaðar orðinn yfir 6°, nema milli Borgarfjarðar og Eyslrahorns og i ágúst kemst hann alstaðar yfir þessi takmörk, en nær þó hvergi 7°. Pegar lengra líður á sumarið, fer hitinn að lækka aftur. Sést það á þcssu, að það er náið samræmi milli þess, hvernig hit- inn vex frá suðúrströndinni, norður- og austurfyrir land, og þess, hvernig átan, fiskaseiðin og síldin færast sömu leið. Og vert er að taka eftir því, að sami liiti (5° línan) er jafntljótur að færast frá Reykjanesi að Melrakkasléttu og' frá Ingólfshötða að Brciðdalsvík. Þess var getið í fyrsta kaflanum, að smáátan væri aðalnæring fiskseiðanna, (seiða nytjafiskanna) meðan þau lifa sviflifi, en þegar nytjaíiskarnir sfækka, hælla þeir alltlestir að lifa á smáátu. Aftur á móti er smáátan aðalfæða flökku- fiska þeirra, sem eru svo afar-mikilsverð fæða fyrir suma af vorum allra nytsöm- ustu fiskum, eins og þorskinn, eftir það að hann er kominn af smáþyrslingsaldr- inum, ýsu, skarkola, smálúðu o. fl. Þeir ilökkufiskar, sem hér er um að ræða eru loðna, sandsili og síld. Ferðir þeirra og aðrir hættir hafa afarmikil áhrif á lífs- hætli fiska þeirra sem á þeim nærast og er þvi ástæða til að minnast nokkuð frekara á Iivern einstakan þeirra. Loðncin (vorsílið) er ishafsfiskur, sem gýtur (í botni) alt í kringum ísland og að likindum oft mjög nærri landi. Eins og alkunnugl er, koma oft ógurlegar torfur af henni upp að suðurströndinni á útmánuðum (i marz og opril) svo að sjór er slundum krökur á margra mílna svæði, ýmist úti á djúpmiðum eða inni í vikum og vogum. Gýtur hún þar oft i slórum stýl og deyr unnvörpum að lok- inni hrygningu (gýtur að eins einu sinni á æfinni?) En það er ekki nema sumt af henni sem gýtur við suður- og suð- vesíurströndina; fjöldinn af henni yfir- gefur þessar slóðir og heldur á burl vestur og norður á hóginn, vestur fyrir Jökul (c: Snæfellsnes) og svo liklega lengra norður og austur. Ef til vill kem- ur eitthvað af henni utan af hafi upp að vesturströndinni. Hún er fljót í ferðum og hefir oft stutla dvöl á sama stað og fiskimenn segja, að hún leiti helzt á vindinn. Þar sem loðnugöngurnar koma, verður uppi fótur og fit á öllu. Hvalir og þorskur hafa fylgt göngunni utan af hafi og legufiskurinn sem fyrir er, verður snarvitlaus; hann herjar á loðnulorfurnar og trcður sig fullan af þessu sínu kærasta sælgæti og hafi loðnutorfurnar enga við- dvöl, þá slæst liann í för með henni eða eltir hana, hver veit hvað. Sumar vertið- ar kemur hver loðnugangan eftir aðra og kemur öllu i uppnám i hvert skifti og vill það reynast svo, að alli verður stopull þegar svo er. En staðnæmist loðnan svo að fiskurinn fái að eta sig fullann — og lil þess þarf ekki svo lílið, — »legst hann á meltuna« á eflir og gefur sig svo síðar til sem legufiskur, þegar hann fer að svengja aftur. Þegar kemur fram í mai og júni er Ioðnan komin norður og austur fyrir land og gýtur þá þar. En á þeim slóðum er alt sumarið mikið af loðnu af ýmissi stærð (fyrir sunnan

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.