Ægir - 01.06.1919, Blaðsíða 15
ÆGIR
65
andi áætlun Bjarna Einarssonar sýnir,
þannig að sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu fari
fram á það við landsstjórnina, að styrk
þeim, kr. 18,000, sem veittur er lil strand-
ferða á áðurnefndu svæði verði skift, og
alt að kr. 12,000 verði veþtar lil strand-
ferðal)áls Bjarna Einarssonar, þó með
þessum skilyrðum:
1. Að Bjarni Einarsson setji nj’ja, ábyrggi-
lega vél í m.b. »Mjölnir«, ekki aílminni
en 18 hk.
2. Að hann bæti tveim ferðum við Siglu-
fjarðarferðirnar og einni til Þorgeirs-
fjarðar dagana frá 14. riiai lil 1. júni.
3. Að farmgjöld verði 20°/« lægri en með
»Sterling« í ár, ef vegalengdin, sem
varan er flull, nemur meira en 6 míl-
ur, ella verði farmgjöldin 40°/o lægri.
4. og að farmgjöld lækki að sama skapi.
Verði þessum skilyrðum fullnægt, teljum
við ferðunum svo liaganlega fyrir komið
sem á verður kosið, úr því sem nú er að
ráða.
p. t. Akureyri 4. apríl 1919.
I’áll Bergsson. Sig. Jónsson. Ivr. Pálsson.
t*elta nefndarálit var borið upp í heild
sinni og samþykt í einu liljóði.
8. Nefndarálit vélskólamnlsins
var þvi næsl lagt fram svohljóðandi:
»Því verður ekki neitað, að mótornám-
skeið þau, sem Fiskifélag Islands lælur
halda, eru til mikils gagns fyrir mótórút-
gerðina, en því verður heldur ekki neitað,
að fyrirkómulagið, eins og það er nú, er
niiög ófullkomið, en það er álit vorl, að
*l þessu megi ráða mikla bót með tiltölu-
iega litlum kostnaði.
Hingað lil hefir að minsla kosli verklega
kenslan orðið að fara fram í lélegum, jafn-
'el óhæfnm húsakynnum. Undir hælinn
beíii' verið lagt, hvort mögulegt hefir verið
að ná í nokkurn mótor til þess að kenna
og æfa nemendurna á, og þeir mótórar,
er fengisl hafa, hafa venjulega vérið upp-
gjafa skrífli. Engin áhöld hafa verið til,
svo ómögulegt hefir verið að kenna nem-
endunum að halda á verkfærum eða gera
sjálfir við algenguslu bilanir, en kunnáltu-
leysi í þeim efnum getur ofl komið sér
mjög bagalega, sérstaklega á sjó úti.
Vér finnum ekki ástæðu að sinni lil
að orðlengja frekar um þelta, en leyfum
oss að gera þá tillögu, að fjórðingsþingið
leggi það fyrir Fiskiþingið:
1. að í hverjumlandsfjórðungi sé trygl fast,
golt húspláss til verklegu kenslunnar,
2. að deildirnar á hverjum stað útvegi
húsnæði, en Fiskifélag íslands greiði
húsaleiguna,
3. að þar séu settir upp 2—3 mótorar,
sem séu eign Fiskifélagsins,
4. að Fiskifélagið eigi líka á hverjum
stað skrúfstykki, kveikingatæki, þjalir.
meitla, liamra og önnur smáverkfæri,
5. að Fiskifélagið liafi tvo menn til að
kenna, en að þeir skifti landinu á
milli sín þannig, að þeir kenni á tveim
s.töðum hvor á ári, og loks
6. að hvorl námskeið vari ekki skemur
en 2—3 mánuði.
Með þessu fyrirkomulagi álítum vér
stórt sport stigið í framfaraállina og nauð-
synlegt að það geti sem fyrst komisl á.
Ennfremur teljum vér heppilegt, að sem
fyrst yrðu fáanlegar kenslubækur á íslenzku
í mótorfræði.
Akureyri, 4. apríl 1919.
Karl Niknlásson, Páll Hcrgsson.
Helgi Halliðason.
Tillögur nefndarinnar voru samþýktar í
einu hljóði.
9. Neíndaríílit frií strandvarnarnefndiimi
barst svohljóðandi: