Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1919, Blaðsíða 20

Ægir - 01.10.1919, Blaðsíða 20
122 ÆGIR höfum hvervetna veriS velkomnir á lestrar- stofur sjómanna út um heim, höfum þar heyrt margt gott or‘S og þegiS aðvaranir og gó'S ráS og höfum ekki veriS settir hjá, þegar gjöfum á jólahátíSum hefir veriS úthlutaS. Hér sem annarsstaSar verSa lestrarstofur fyr- ir sjómenn aS álítast hvíldarstaSur fyrir lang- ferSamanninn hverrar þjóSar sem hann er. Vonandi verSa einhverjir góSir menn til þess aS styrkja þetta fyrirtæki Fiskifélags- ins, svo aS hugmyndin komist í framkvæmd áSur en mörg ár líSa. Þar sem þaS sjálft aS eins getur lagt iooo krónur í sjóSinn árlega, mundi langur tíma líSa þangaS til húsi yrSi upp komiS, ef engir yrSu til aS veita frek- ari hjálp. Reykjavík í október 1919. Sveinbjörn Egilson. Skipun Alþingis. Fréttir um úrslit Alþingiskosninga aS þessu sinni eru fengnar úr öllum kjördæmum lands- ins. Nú má því kanna AlþingisliSiS. En könn- unin verSur talsvert erfiS, ef hún á aS verSa ■eftir pólitískum einkennum. Aftur á móti má skifta þingmönnum í flokka eftir ýmsum öSr- um einkennum. Af nýkosnum þingmönnum hafa þ e s s i r 9 aldrei áSur á þingi setiS: Jakob Möller ritstjóri (Rvík). Ólafur Proppé kaupmaSur (V.-ísaf.). Jón A. Jónsson bankaútbússtjóri (ísaf.). Jón SigurSsson bóndi á ReynistaS (Skgfj.). Gunnar SigurSsson yfirdómslögmaSur (Rang.), GuSmundur GuSfinnsson, læknir (Rang.), Eiríkur Einarsson útbússtjóri (Árni), Þorleifur GuSmundsson út.vbóndi (Árn.), Einar Þorgilsson kaupmaSur (Gullbr. og Kjósars.). Nærfelt 4. hluti þingsins er þvi alveg nýir menn og óreyndir til þingstarfa. 3 h i n n a n ý k o s n u þ i n g m a n 11 a sátu ekki á þingi síSasta kjörtímabil, en hafa áSur veriS þingmenn, þeir: Sveinn Björnsson yfirdómslögmaSur (Rvík), Björn Hallsson bóndi á Rangá (N.-Múl.), SigurSur H. Kvaran læknir (S.-Múl.). 12 n ý i r þ i n g m e n n koma því til sög- unnar nú, en 28 hinna görnlu sitja kyrrir. Þessir 12 nýju þingmenn koma í staS þess- ara: a) 5, sem eigi buSu sig fram: Jörundar Brynjólfssonar (Rvík), Matthíasar Ólafssonar (V.-ísafj.), Ólafs Briems (Skgfj.), Einars Arnórssonar (Árn.) og Kristins Daníelssonar (Gullbr. og Kjós.), og b) 7, sem f é 11 u v i S kosningarnar: Jóns Magnússonar (Rvík), Magnúsar Torfasonar (ísaf.), Jóns Jónssonar, Hvanná (N.-Múl.), Björns R. Stefánssonar (S.-Múl.), Eggerts Pálssonar (Rang.), Einars Jónssonar (Rang.), og SigurSar SigurSssonar (Árn.). Eftir þessar kosningar eiga sæti á þingi 7 lögfræSingar, þeir: Sveinn Björnsson, yfirdómslögm., Magnús GuSmundsson, skrifstofustjóri, Jóh. Jóhanneson bæjarfógeti, Karl Einarsson bæjarfógeti, Gunnar SigurSsson, yfirdómslögm., Eiríkur Einarsson útibússtjóri, og SigurSur Eggerz ráSherra (landkjörinn). Á þing hafa því komiS 3 nýir lögfræSingar (Sv. B., Eir. Ein. og Gunn. Sig.), í staS 3* er fariS hafa (E. A., J. M. og Magn. Torf.). L æ k n a r verSa 5 á þingi, þeir: Halldór Steinsson, Magnús Pétursson,

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.