Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1929, Síða 7

Ægir - 01.03.1929, Síða 7
ÆGIR 51 getið ýmissa hluta annara um opua háta yfirleitt. Þó verð ég auðvitað að miða lýsingu mína við þann bátinn, sem ég þekti best, en það var áttæring- urinn „GIDEON“ Var liann talinn með stærstu áttæring- um um sina daga, hálfrar þrettándu álnar langur á kjöl, en hálf seytjánda alin milli stafna; sjö og hálfrar álnar breiður og hálf önnur alin á dýpt undir hástokka; árar voru langar, fullar níu álnir og þriggja þumlunga breið hlöðin. Bátur þessi var smíðaður í Landeyj- um, og þegar hann var tilbúinn færðu Landeyingar liann til Eyja, gekk þeim vel „út“ en miður til lands aftur., því að gæftir voru svo stirðar, að þeir urðu að híða byrjar í 13 vikur; mundi slíkt þykja ekki liðlegar samgöngur nú, en 'úð þetta urðum við að húa, sem nú er- um orðnir gamlir, og munum þó varla Iiafa verið miklu óánægðari og van- þakklátari við guð og menn, en nú ger- ist meðal þeirra, sem yngri eru, og betra piga að venjast bæði um þetta og annað. Sigling á áttæringum var að öllum jafnaði hin svokallaða „lokortusigling“, °g svo var um „Gideon“; voru siglur ivær, liin fremri hálfníunda alin á hæð, hin aftari ellefu. í framsegl og klýfir þurfti 44 álnir af álnar breiðum dúk, en i aftur seglið 60 álnir. Formenn á opnum bátum, slíkum sem <fGideon“ höfðu jafnan hlut við háseta °g 40 krónur að auki, en hásetar fengu 3—4 króna þóknun, er kölluð var ^skipsáróður11, og greiddi bátseigandi hvorttveggja. Síðar var sú venja upp- tekin, að bátseigendur buðu skipverjum hl sín nokkrum (2—4) sinnum á vertíð °g veilti þeim sætt kaffi og nieð því, °g enda stundum vín í kaffið. Þá var og haldin einskonar veisla, er bátur var settur í hróf, og veitl hrauð, tóbak og vín, og ekki nóg með það, lieldur var hverjum þeim, sem vann að því að koma skipinu í hrófið, gefin þriggja pela flaska af brennivíni í nestið. Meðan fiskað var á liandfæri, var 19—20 manna skipshöfn á hverjum átt- æring, og að auki einn eða tveir drengir upp á hálfdrætti. Eftir áttæring voru teknir fjórir hlutir og kallaðir „dauðir ldutir“, og var aflanum skift i 23—24 slaði. En þegar farið var að nota lóðir (í Vestmannaeyjum um 1897), breyttist þetta nokkuð og þó ekki til muna fyr en eftir 1900. Hver háseti var skyldugur til að gegna „kalli" formanns sins á Kyndilmessu, uema lögleg forföll kæmu til, en um þau var varla að tala hjá öðrum en þeim, sem voru af landi ofan, þvi að þeir urðu auðvitað að sæta leiði af landi, og gat þá oltið á ýmsu um komu þeirra í verið. En hlut fjekk háseti þótt veikur væri og óverkfær alla vertíðina. Vertíð var talin frá Kyndilmessu til loka, en oftast var þá vertíðarróðrum hætt um sumarmál, og reyndar stund- um fyr og fór um það eftir gæftum og aflabrögðum. „Gideon“ var talinn allmikið skip, en fremur valtur, væri hann tómur, en þvi hetri í sjó að leggja seití meira var i honum, og bar hann í sæmilegu veðri og sjó 40 fiska hlut af fullorðnum þorski. Oft var um þessar mundir farið í há- karlalegur, og þóttu það svaðilfarir ekki all-litlar, því að oft var langt róið og legið úti. Þótti það sæmilegur afli að fá 32 tn. lifrar í legu, enda báru áttæring- ar ekki meira svo að trvgt þætti, því að lifur or illur farmur, og var þá haft meira borð fyrir báru en ella. Áttæringar með „lokortusiglingu“

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.