Ægir - 01.03.1929, Qupperneq 10
54
ÆGIft
höfðu selt alt, sem þeir áttu áður. Þveg-
inn og pressaður labrador var seldur á
50 og 53 aura kilóið i okt. og nóv. fob.
og saltaður stórfiskur á 50—55 aura
kílóið fob. Eftirspurn virtist vera nokk-
ur eftir þessum tegundum af fiski.
Yfirleitt má segja að þetta ár, 1928,
hafi verið mjög gott aflaár hér á Aust-
urlandi en þó var grunnaafli yfirleitt í
lakara lagi yfir sumarið. Aftur var afli
á vélbáta ágætur yfirleitt. Útgerð hér
eystra jókst ekki neitt að skijjakosti að
mun, nema einn togari var keyptur til
Eskifjarðar, en hann lagði þar ekki upp
nema eitthvað innan við þúsund skip-
und af fiski til verkunar. Til Norðfjarð-
ar var keyptur einn vélbátur ca 20 tonn,
annað liefir ekki bæzt við af skipum.
Eins og sést af aflaskýrslum er aflinn
hér eystra 42566 skippund, þar af er
keypt af útlendum skipum 8522 skip-
pund, svo að alls er aflað af hér búsett-
um skipum og bátum 34044 skippund
og er það mikið hærra en næsta ár á
undan.
Hagur manna liefir yfirleitt batnað
mikið, þó að þess gæti ekki í fljótu bili,
þvi að útgerðarskuldir fyrri ára voru
orðnar svo miklar, að þessa árs hagnað-
ur liefir gengið mikið til greiðslu á
þeim, en jafnframt auðvitað gert mönn-
um hægar fyrir, til framkvæmda á
næsta ári.
Undirbúningur er einliver meðal út-
gerðarmanna og sjómanna hér eystra
með að auka útgerð sína, og afla sér
nýrra báta. Á Fáskrúðsfirði er t. d. ver-
ið að byggja tvo vélbáta sem eru frá 12
til 16 tonn, einliverja báta er verið að
smíða og kaupa í Noregi, og svo er ver-
ið að endurbæta vélbáta, sem staðið
liafa lengi á landi, og byggja upp og
stækka gamla báta, svo að útlit er fyrir
að útgerð aukist að mun hér eystra á
þessu ári.
Seyðisfirði 1. febrúar 1929.
Herm. Þorsteinsson.
Guðmundur Jón Skúlason,
skipstjóri.
Hann andaðist á lieimili sínu Fagur-
ey á Breiðafirði 29. apríl s. 1. Jón sál.
•'"i
i
Guðmundur Jón Skúlason.
var fæddur 14. sept. 1872. Foreldrar
lians voru þau merkishjónin Skúli
Skúlason og Málmfríður Pétursdóttir,
er um langt skeið bjuggu i Fagure^".
Skúli var annálaður formaður og' sjó-
sóknari undir Jökli, og átti Jón því
elcki langt að sækja sjómenskuhæfileika
sína. 16 ára að aldri varð Jón formaður,