Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1929, Síða 11

Ægir - 01.03.1929, Síða 11
ÆGIR 55 °g þótti snemma bera á afburða hæfi- leikum hjá honum við þann starfa. Var línnn samtals 12 vetur formaður undir •^ökli og ávalt með þeim aflahæstu. f vítugur að aldri gerðist Jón sál. for- maður á þilskipi. Hafði hann aldrei á þilskipi verið áður og' sýnir það bæði livað hann var áræðinn, að taka að sér skipstjórn án þess að hafa fengið nokk- nrn sérstakan undirbúning, og ekki síð- Ur lútt, hversu mikils álits liann naut öæði hjá þeim, er gerðu skipið út og eins hjá skipshöfninni, því ekki virtist honum erfitt að afla sér háseta. Þótt Undirbúningur vrði ekki meiri en þetta syndi það sig brátt, að Jón var starfinu fyllilega vaxinn. Var hann upp frá því skipstjóri í samfleytt 27 sumur, og er það einróma álit þeirra, er kyntust úoniun við þann starfa, að trauðla geti úappasælli eða ábyggilegri skipstjóra °n hann. Væri freistandi að tilfæra ýms úæmi frá skipstjórnarárum lians, svo sem þegar liann hrepti mannskaðaverð- í apríl 1906 á leið frá Stykkishólmi iú Isafjarðar, hrakti norður Húnaflóa, °g hrepti þar aftaka norðan rok með frosti og isreki, svo miklu, að nauðug- lega varð undan komist. Stóð hann þá á lúljum samfleytt á þriðja sólarhring, og niundu fáir eftir leika í slíku veðri. Mœtti margt til tína, en ekkerl sýnir þó öetur hvílíkur skipstjóri liann var, en l)aÓ\ að alla lians löngu formenskutið úenli hann aldrei neitt óhapj), og þótt siikt sé venjulega talið lán eða hepni, nnin raunin þó oftast vera sú, að þar 'eldur mestu um, fyrirhyggja og leikni þess, er stjórnar. Breiðfirðingar hafa löngum haft það 0l'Ö á sér, að vera miklir sjósóknarar ng slungnir stjórnarar, en það er álit þeirra, er til þektu, að þar hafa fáir eða engir tekið Jóni fram. Um margt var .Tón umfram aðra menn, hann las mikið og var bæði fróð- leiksfús og hafði gaman af að ræða ýms vandamál tilverunnar, við kunn- ingja sína, sérstaklega voru honum þjóð- félagsmálin hugleikin. Fylgdist hann vel með í öllum landsmálum, myndaði sér þar ákveðnar skoðanir, og hélt þeim fram með festu og djörfung hver sem í hlut átti. Jón var kvæntur Ingibjörgu Berg- sveinsdóttur frá Bjarneyjum, lifir hún mann sinn ásamt 3 sonum þeirra, Skúla, Bergsveini og Lárusi, sem allir eru fulltíða menn og hinir mannvænleg- ustu. Jón sál. bjó mest allan búskap i Fag- urey, stundaði hann búskapinn sem sjó- menskuna með mestu atorku, kunni hann þar tök á stjórninni ekki síður en á skipum sínum. Sýndi það sig ekki livað síst i þvi, að sörnu lijúin hélt hann svo skifti áratugum og mun slíkt eins- dæmi á þessum tímum. Síðustu ár æfi sinnar þjáðist Jón af mjög þjáningar- miklum sjúkdómi, og þrjú síðustu árin var bann nær altaf rúmfastur. Aldrei heyrðist hans æðru orð, og nær sem af bráði var hugurinn fullur af við- fangsefnum. Um liann verður með sanni sagt, hann lifði sem karlmaður og dó sem hetja. þorskafli Norðmanna 1929 16. marz: 101,263 smálestir, þar af hert 26,227 smál. 71,035 smálestir saltað. — þetta er miðað við slægt. 100 stykki eru reiknuð 300 lcilo.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.