Ægir - 01.03.1929, Qupperneq 21
ÆGIR
65
mál og bendir á aðferSir til að bæta úr
aðgerðarleysi.
Urðu fjörugar umræður um málið og
að þeini loknum bar forstjóri Veður-
stofunnar, Þorkell Þorkelsson, fram
eftirfylgjandi tillögu:
„Aðalfundur telur æskilegt, að stjórn
Fiskifjelagsins kalli eigendur smávjel-
báta i Reykjavík á fund til þess að
gjöra tilraun til að mynda Samtrygg-
ingu á opnum vélbátum, með endur-
tryggingu hjá vátryggingarfélagi.“
Tillagan var samþykt.
Þá fór fram kosning fulltrúa á Fiski-
þing og féll kosning þannig:
Aðalfulltrúar:
Magnús Sigurðsson bankastjóri, kos-
inn með 10 atkv.
Geir Sigurðsson skipstjóri, kosinn
með 7 atkv.
Jón Ólafsson alþm., kosinn með 7
atkv.
Bjarni Sæmundsson fiskifræðingur,
kosinn með 6 atkv.
Varafulltrúar:
Þorsteinn Þorsteinsson skipstjóri,
kosinn með 10 atkv.
Axel Tulinius framkvæmdastjóri, kos-
inn með 9 atkv.
Óskar Halldórsson útgerðarmaður,
kosinn með 8 atkv.
Sigurjón Ólafsson skipstjóri, kosinn
með 7 atkv.
Endurskoðendur voru kosnir með
lófataki:
Magnús Sigurðsson bankastjóri og
Brynjúlfur Björnsson tannlæknir.
Sömuleiðis voru varaendurskoðendur
endurkosnir:
Sighvatur Bjarnason fv. bankastj. og
Matthías Ólafsson gjaldkeri.
Þá var komið að síðasta lið dagskrár:
Vnriur mál.
Jón Bergsveinsson bar fram tillögu
og' gerði grein fyrir ástæðum til hennar.
TiIIagan liljóðaði svo:
„Aðalfundur Fiskifélags Islands, skor-
ar hér með fastlega á Alþingi og rikis-
stjórn að lilutast til um það, að fram-
vegis verði vitarnir látnir hafa sjálfstæð
fjármál aðskilin frá ríkissjóði, þar sem
alt vitagjaldið verður látið ganga til
vitabygginga, sjómerkja, sæluhúsa, leið-
armerkja og' reksturs vitanna“.
TiJlagan var samþj'kt í einu hljóði.
Þá bar Óskar Halldórsson fram svo-
ldjóðandi tillögu:
„Aðalfundur Fiskifjelags íslands,
skorar á ríkisstjórnina að flýta sem
mest fyrir byggingu Síldarverksmiðju
ríkisins á Siglufirði þannig, að byrjað
verði á verkinu strax í vor svo síldar-
verksmiðjan verði fullbúin til starf-
rækslu í byrjun síldartíma 1930 og starfi
sem mest með hagsmuni l)átaútvegsins
fyrir augum“.
Tillagan var samþvkt með 9 atkv.
gegn 2.
Fleira var ekki tekið fvrir og var þá
fundi slitið.
Þorsteinn Þorsteinsson
(fundarstjóri).
Sveinbjörn Egilson
(ritari).
Leiðrétting. 1 skýrslu erindrekans i
Vestfirðingafjórðungi í síðasta tbl. Ægis
hefir á bls. 42 10. 1. a. o. fallið úr orðin:
„verður að hamra á málunum" o. s. frv.
Setningin á að vera þannig: „Ef Fiski-
félag'ið og þá Fiskiþingið fvrst og fremst
eiga í framtíðinni að vera atkvæðamikl-
ir aðiljar um fiskveiðamálefni verður að
hamra á málunum án afláts“.