Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1930, Blaðsíða 7

Ægir - 01.01.1930, Blaðsíða 7
ÆGIR. MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS. 23. árg Reykjavík, — Janúar 1930. Nr. 1. Sjávarútvegurinn 1929. Eftir Kristján Bergsson. Árið sem leið má að mörgu leyti telj- ast mjög gott að því er sjávarútveginn snertir, aflinn liefir vfirleitt verið mjög góður, og verðið má heita að verið liafi vel viðunandi, og sala á fiski hefir geng- ið allgreitt, þó mun meðalverðið hafa verið eitthvað lægra en árið á undan. Sérstaklega var þó afli góður á öll skip, sem fiskuðu með lóð og færi, og er ekki óliklega að það standi að nokkru leyti í sambandi við það, hvað fiskur var magur og áta lítil í sjónum, svo að slikt „megringsár" hefir ekki komið nú i langan tima. Því miður hefir ekki verið hægt að rannsaka hvernig á því stóð, að fiskur hér við land var á þessu ári — sérstak- lega f>Tri hluta ársins — svona horaður, en líklega hefir það stafað af fæðu- skorti. Og þá er jafnframt ekki ótrúleg sú tilgáta, sem margur hefir haldið fram, að „óáran“ sú sem var í svartfugl- inum fyrir Norðurlandi siðari hluta vetrarins, hafi stafað af sömu ástæðu, en svartfuglinn lirundi niður unnvörp- um og lá í hrúgum víða í fjörunni eða á fjörðum inni. Og þegar leið á vorið, eða fram að eggjatíma, sást varla fugl í björgum, og að minsta kosti bæði í Grímsey, Drangey og í Hornbjargi urðu engar tekjur af fuglaveiði á móti því sem vanalegt er. Ef að megurðin á fisk- inum hefir stafað af fæðuskorti, þá er heldur ekki ólíldegt að hið sama hafi átt sér stað með svartfuglinn, sem lifir af samskonar fæðu og fiskurinn og sæk- ir björg sina á líkar slóðir. Það er ó- mögulegt að segja hvort að átuleysið i sjónum hafi verið svo mikið, að sumar tegundir fiska hafi fallið úr hor eða ekki, en nauðsynlegt væri að rannsaka, eftir þvi sem hægt væri, og fylgjast vel með í því hver áhrif slík megurðarár hafa á fiskimagnið næstu ár á eftir. Suðurland. Eins og vant er byrjaði vertiðin þar strax upp úr áramótunum, og var þá strax allgóður afli á Akranesi og við inn- anverðan Faxaflóa. Hásetaverkfall stóð vfir i byrjun ársins á línuveiðagufuskip- um og togurum, þó komust fljótlega á samningar milli útgerðarmanna og há- seta á línuveiðaskipum, og fengu háset- ar hækkað kaup sitt allmikið, og varð að samningum að þeir skyldu fá 8 kr.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.