Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1930, Blaðsíða 20

Ægir - 01.01.1930, Blaðsíða 20
14 ÆG I R fJestar verða að sækja afla sinn langt að, og eiga því óhægt með að koma hon- um óskemdum inn í löndin til neytend- anna. Menn hafa gert sér vonir um að sænska frystihúsið, sem verið hefir í smiðum hér í Reykjavík undanfarandi ár mundi ÍDrjóta ísinn á þessu sviði, en bjTgging þess hefir dregist mjög, en þó er það nú svo langt komið, að gert er ráð fyrir að það taki til starfa snemma á næsta ári. Seinni hluti ársins var nokkuð flutt af fiski ísuðum i kössum til Englands, og liafði ég fyrir nokkrum árum hreyft því alriði, að hægt væri að nota enska markaðinn á þann hátt, en meðan að samgöngum er ekki hagað öðruvísi en enn er orðið í sambandi við þá mögu- leika, er ekki að búast við að hægt sé að reka þessi viðskifti i stórum stíl, t. d. hefir orðið að senda sumt af þessum fiski til Bergen með „Lyru“, taka kass- ana þar í land, ísa fiskinn um aftur og senda hann siðan með öðru skipi til Englands. En tilraun þessi er samt mjög virðingarverð, og ef hún lukkast ætti hún að geta orðið undirstaða að aukn- um viðskiftum á ])essu sviði. Togaraveiði og ísfiskssala. Veiðin á togurum hefir ekki gengið vel á árinu, þvi auk þess að þeir voru stöðvaðir tvo fvrstu mánuði ársins, sök- um verkfalls, eins og annarstaðar hér cr tekið fram, þá brást afli hjá þeim fyrir Austurlandi yfir vorið svo að flestir þeirra liættu snenuna saltfisk- veiðinni, sömuleiðis brást mjög haust- aflinn fvrir Vesturlandinu, bæði virtist þar vera óvenjulega fisklitið, enda stöð- ug ótíð svo að togarar gátu lítið haldið þar til á djúpmiðum. Tafla II. nær yfir veiði 45 togara, sem veiði stunduðu frá íslenzkum höfnum, þó vantar þar alveg skýrslu um afla togarans „Leiknis“, sem lagt hefir saltfisk sinn upp á Pat- reksfirði, og sömuleiðis ísfirsku togar- annar að nokkru leyti, nær þessi skýrsla vfir 396 veiðiferðir 44 togara í samtals 5242 veiðidaga, eru það 1925 veiðidög- um færra en árið áður. í þessa 5242 daga hefir aflast samtals 128,440 skp. af verkuðum fiski og er það 33,875 skp. minna en aflaðist á 7167 veiðidaga árið áður, og hefir því hver logdagur í ár gefið 24% skp. af verkuðum fiski á móti 22% árið 1928, 28 skpd. 1927, 23y2 1926 og 22 skpd. 1925. Aflinn hefir þvi orðið góður meðalafli vfir þann tíma sem skipum var lialdið úti. Til Englands hafa íslenzku togararn- ir farið 146 ferðir með afla sinn og selt fjrrir 162123 £ og er það að meðaltali 1110 £ í ferð, og er það lægri sala að meðaltali en verið hefir í mörg ár, 1928 var salan að meðaltali 1176 £ í ferð, 1927 1144 £, 1926 1153 £, 1925 1320 £. Annars hefir verðið verið hátt á ís- fiski í Englandi allan seinni hluta árs- ins, en skipin hafa oft haft mjög lítinn og yfirleitt lélegan fisk. Sildveiði stunduðu 16 togarar og' fór mest af þeim afla i bræðslu. Enginn togari hefir farist á árinu, en einn nýr, „Venus“, bættist við frá Hafn- arfirði i desembermánuði. Sökum þess hve verðið hefir orðið lágt á mestu af saltfiskinum í ár og sömuleiðis lágt verð á sildinni hjá þeim sem þá veiði stunduðu, þá má búast við að afkoma margra togaranna verði ekki góð á þessu ári. Auk þess bætist það við, að lýsið hefir verið í mjög lágu verði, enda mikið minna en vanalega, því að fiskurinn var alt árið lifrarlítill,

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.