Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1930, Blaðsíða 17

Ægir - 01.01.1930, Blaðsíða 17
ÆGIR 11 en fvrir árið 1928 er reikningUr einka- sölunnar lokið og hefir nettóverðið ver- ið kr. 13,50 fyrir tunnu á þvi ári. í mörg ár hefir ekki komið önnur eins ganga af sild upp að Austfjörðum sem á þessu ári; frá þvi um mánaða- mót mai og júní og fram i ágúst var mjög mikið af sild sunnan við Langa- nes alla leið suður fvrir Vopnafjörð og jafnvel suður að Norðfjarðarhorni. Inni á fjörðunum var lika mjög mikið um sild um tíma, einkum þó inni á Mjóa- firði; er það skoðun manna á Austfjörð- um að nú sé síldin að leggjast þar að aftur um tíma, eins og áður var á blómaöld sildveiðanna á Austfjörðum. Það finnst mörgum merkilegt að síld- in skvldi i ár hverfa svona snögglega um líkt leyti allstaðar frá landinu og hennar hvergi verða vart, og leiða menn ýmsum getgátum um hvað af henni hafi orðið, en i norsku blaði í haust sá ég þess getið að norsk skip, sem voru að koma frá Grænlandi og fóru fram hjá Jan Main um 25. sept. hafi sagt að þá bafi verið þar mjög mikið af síld í kringum eyjuna og eins langt og sást upp eftir öllu hafi. Það er ekki óhugs- andi að þarna hafi íslenzka síldin verið komin, og hefði þá ef til vill verið hægt ^ylgja henni lengur eftir, að minnsta kosti á stærri skipum með þvi að leita °ógu langt norður eftir, eftir að hún var horfin frá landinu. Sala sjávarafurða. Sala sjávarafurða gekk all-greiðlega á árinu, þó varð verðið yfirleitt tölu- vert lægra en árið áður. I bvrjun ársins voru birgðir óvenju- litlar, bæði i Noregi og á Islandi, borið saman við sum undanfarandi ár voru birgðirnar 1. janúar, talið i fullverkuð- um skp.: Á Islandi: 1. jan. 1929 45104 skp. 1. — 1928 56799 — 1. — 1927 79182 1. — 1926 107000 I Noregi: 1. jan. 1929 70750 skp. 1. — 1928 50000 1. — 1927 94000 1. — 1926 96000 — Við Nýfundnaland var lika talið að birgðir væru með minnsta móti. Við byrjun ársins var eftirspurn mikil eftir fiski og verðið hátt, mikið hafði verið flutt út óverkað af saltfiski síðari hluta fjTra árs og sömuleiðis fyrstu mánuði ársins, og var verðið i janúar- mánuði 0.57 pr. kg. en birgðirnar af verkaða fiskinum voru allar fyrir löngu seldar, var því farið að falast eftir húsþurkuðum fiski strax fyrstu mánuði ársins og var þá verðið kr. 160 pr. skp., en bæði var verð þetta of hátt fyrir markaðinn svo að úr neyzlu dró, enda reyndust birgðirnar meiri en gert var ráð fyrir, sömuleiðis byrjaði veiðin mjög snemma í Noregi ásamt ágætis tíð og ágætum afla á íslandi, svo að verðið fór fljótt lækkandi, og var það i byrjun marz koinið niður í 145 kr. af verkuðum húsþurkuðum fiski, en salt- fiskur i 0.45 pr. kg., en þetta verð gat heldur ekki haldist og fór það stöðugt lækkandi, einkanlega á saltfiski, sem mun lægst liafa komizt í 0.36 fullstaðinn f. o. b., þó varð verðið heldur liærra á smáfiski, enda var alltaf töluverð eftir- spurn eftir honum, sömuleiðis eftir „la- brador“-fiski. Verðið á nýju fram- leiðslunni byrjaði með kr. 128 pr. skp. á ísafirði, en eftir að frainboð fór að

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.