Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1930, Blaðsíða 15

Ægir - 01.01.1930, Blaðsíða 15
ÆGIR 9 ársafla í ár en árið áður, eða 34994 skpd. móti 42366 skpd., og af því er keypt af útlendum skipum 3838 skpd., en 1928 2641 skpd. Síldveiðin. Sildveiðin gekk mjög vel á árinu og má telja að þetta ár hafi verið með allra mestu síldarárum, þrátt fyrir það að veiðin hætti óvenjulega snemma. í síðari hluta júnimán. fóru fyrstu skip Ivveldúlfsfélagsins, sem ætluðu að leggja upp veiði á Hesteyri, og urðu þá strax vör við mikla síld á Breiðafirði, fj’rir sunnan Látrahjarg, og byrjuðu þau þá strax veiði þar og tóku þar nokkra hlaðninga. Er það i fyrsta skifti svo menn viti að síld hafi verið fiskuð þar i snurpinót eða að hjæjað liafi verið á sildveiðum svona snemma. Það var auð- séð að síld þessi var á gangi norður með landi, enda fór þá rétt á eftir að fiskast bæði fyrir Vestfjörðum og á Húnaflóa. Þessi fjæsta veiði kom þó til- tölulega fáum að notum, því að flest skipin voru ekki tilhúin að fara eða bú- ln að gera samninga um sölu á veiði sinni, þvi að flestum þótti það verð, sein boðið var, helst til lágt til þess að þau gætu sint því, enda sumar hræðslustöðv- arnar, t. d. stöð íslandsbanka á Önund- arfirði, alls ekki ákveðin í því, livort að starfrækt yrði. Það varð þó útfallið, þegar að þessar miklu sildarfréttir héldu áfram að berast, að flest þ au skip, sem vön eru að stunda þá veiði, fóru á stað. En þar sem stöðvarnar voru ekki tilbún- ar fyr en á siðustu stundu, til að taka á móti, en mikið harst að af sild alstað- ar, urðu flestar stöðvarnar að hætta að iaka á móti um lengri eða skemri tíma, °g urðu því skipin að liggja oft tímum saman sem þau fengu ekki að losa, og þó varð að lokum nokkuð ónýtt í þrón- um hjá sumum bræðslunum, svo að þær að lokum þurftu að kasta nokkru í sjó- inn aftur, sem orðið var svo morkið að þær gátu ekki unnið síldina. Verðið á síldinni var lika lægra en það hefir verið i mörg ár, eða kr. 7.00 málið hjá hræðslustöðvunum á Vestur- landi, en 6 kr. lijá flestum á Norður- landi, þó mun Goos á Siglufirði liafa keypt nokkuð lægra verði, líklega ná- lægt 3—4 kr. málið, enda mun hann hafa verið sá einasti af þeim eigendum bræðslustöðvanna se.m notaði aðstöðu sína til að þvinga verðið niður, þegar svona harst mikið að og skipin gátu ekki losnað við veiðina og urðu oft fegin að taka livaða hoði sem fekst. Arið áður var verðið á bræðslusíldinni kr. 9.00, og tvö árin þar á undan kr. 11— 13.00 málið, svo að afkoma skipanna margra var mjög slæm, og þó að útgerð- in hæri sig hjá þeim sem best fiskuðu, þá voru hin þó inörg, sem ekki fengu fyrir kostnaði. Lítið betur gekk með þau skip, sem söltuðu, því að þó ákveðið væri í byrjun af stjórn Síldareinkasölunnar að söltun skyldi hyrja 24. júlí, þá þótti sildin þó yfirleitt of smá og mögur, og var því söltunartíminn yfirleitt frainlengdur til 1. ágúst, nema á litlu „partii“, sem sall- að var og sent út strax, enda voru þá Norðmenn byrjaðir fyrir löngu að salta fyrir utan línuna og sendu þá síld út. En bæði barst strax mjög mikið að á síldarverstöðunum, þegar farið var að salta, þvi að stutt var að sækja síldina og veiði mikil, svo að fljótlega fór að tregast um móttöku, enda varð tilfinn- anlegur tunnuskortur eftir að kom fram í miðjan ágúst, og í kringum þann 20. hvarf síldin alveg mjög snögglega, og fékst ekkert eftir það af hafsíld svo teljandi væri; voru þá komnar miklar

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.