Ægir - 01.01.1930, Blaðsíða 14
8
ÆGIR
sviði en verið hafði undanfarandi ár.
Þegar kemur fram i lok febrúar fara
bátarnir frá liinuni norðlægari fjörðum
vanalega suður á Hornafjörð eða Djúpa-
vog og stunda veiðina þaðan yfir vertið-
ina. En i þetta skifti kom fiskur óvenju
snemma upp að hinum norðlægari fjörð-
um, og seinni liluta janúar var ágætis-
afli á Fáskrúðsfirði, 7—11 skpd. í róðri,
og i byrjun marzmánaðar var fiskurinn
genginn alla leið á móts við Seyðisfjörð,
og var þá um tíma landburður af afla
um alla Austfirðina, 6—26 skpd. í róðri
þegar á sjó gaf, en beituleysi bamlaði
þá mikið. Þá felcst dálítið af síld i lag-
net á Seyðisfirði að öðru livoru, en það
nægði ekki nærri því öllum. Þá var líka
loðna komin á Hornafjörð, en aflinn þar
fer vanalega eftir því, hvernig gengur að
ná i liana; var þá líka um tíma ágætis
afli á Hornafirði. Rúmlega 20 bátar
gengu frá Hornafirði, og öfluðu þeir í
marzmánuði 18—19 hundruð skpd., en
eftir það mátti segja að aílur afli væri
búinn á Hornafirði, enda hvarf þá loðn-
an þaðan. Síld sú, sem aflaðist á Aust-
fjörðum, var fullvaxin bafsíld, 35—38
cm., og með fullþroskuðum hrognum.
í marzmánuði er vanalega góður afli
fyrir Austurlandi, en í þetta skifti brást
„vorhlaupið“ að mestu leyti, enda var
tíð mjög slæm og umhleypingasöm um
það leyti, svo að sjaldan gaf á sjó. Aft-
ur á móti var óvanalega góður afli í
júnímánuði, enda fór sild að fást aftur
inn á fjörðunum seinni hluta maímán-
aðar, og eftir að kom fram í júní var
altaf til nægileg síld til beitu, og stóð
þessi síld þarna alveg fram í ágústmán-
uð, að hún hvarf þaðan eins og annars-
staðar frá landinu.
Yfirleitt var fiskur nokkuð langt sóttur
á Austfjörðum framan af vertíð og fram
í apríllok, og varð aflinn því lítill á smá-
mótorbáta eða árabáta, sem liáðir eru
fiskigöngunum, að aflinn komi á grunn-
miðin.
Eins og annarstaðar á landinu var
fiskur mjög magur fyrir Austurlandinu,
enda kom sílisganga þangað engin, svo
teljandi væri, og var fiskur svo grannur
þar á vorvertíðinni, að talið er að ekki
liafi fengist nema 12—15 lítrar af lifur
úr 400 kg. af hausuðum og slægðum
fiski, af fiski þeim, sem aflaðist inni á
fjörðunum, en eittlivað lítið meira af
þeim afla, sem sóttur var á djúphaf.
Aftur á móti var talið að síld sú, sem
fekst inni á fjörðunum yfir vorið hafi
verið óvenjulega vel feit, eftir þvi sem
gerist um það leyti árs.
Sumarmánuðina júlí—september var
tregur afli á hinum suðlægari fjörðum.
Aftur á móti var þá góður afli á smá-
báta á flestum fjörðunum fyrir norðan
Seyðisfjörð, en útgerð er þar yfirleitt
lítil, þó er opnum mótorbátum altaf
nokkuð að fjölga þaðan, einkum frá
Vopnafirði, og gengu þaðan í sumar 12
opnir vélbátar, og voru 10 af þeim
lieimahátar. Sömuleiðis stunda Færey-
ingar altaf nokkuð veiði á smábátum frá
Austfjörðum, og lialda þá til í landi og
selja afla sinn innanlands.
í sumar var gerð lendingarbót allgóð
á Skálum á Langanesi, og má búast við
að framvegis komi það til að lijálpa
þeirri veinðistöð mikið, en þaðan er
mjög stutt til fiskjar og eingöngu notað-
ir árabátar. ;
Þar sem sumaraflinn og haustaflinn
brást svona tilfinnanlega á svðri fjörð-
unum, en þar er aðalskipastóllinn, þá
verður lieildarútkoman töluvert verri en
undanfarin ár, og er Austfirðingafjórð-
ungur eini landshlutinn sem liefir minni
J