Ægir - 01.01.1930, Page 30
24
ÆGIR
skipskoðunarmönnum verði veitt vald
til þess, að ákveða, hve vélar megi
stærstar vera i hverjum bát eða skipi
fyrir sig, i lilutfalli við stærð skips og
styrkleika". Samþykkt i einu hljóði.
6. Vélgæzla.
Þessi tillaga var horin upp:
„Fjórðungsþingið endurtekur tillögu
sina frá síðasta þingi, að til þess að
geta orðið 1. vélstjóri verði maðurinn
að liafa unnið sem 2. vélstjóri visst
tímahil, og sættir sig við að það tímabil
sé „minnst 3 mánuðir“, eins og Fiski-
þingið samþykkti**. Samþ. í einu liljóði.
7. Opnir vélbátar og öryggi þeirra.
Þessi tillaga var borin upp:
„Fjórðungsþingið vill beina atliygli
Fiskifélagsins að því, að það afli upp-
lýsingar um það, á hvern hátt sé hægt
að gjöra vélbáta öruggari en nú er, t. d.
með loftþéttum hylkjum, og að þær um-
bætur, sem að gagni geta komið, verði
lögboðnar“. Samþykkt í einu hljóði.
8. Vitamál.
Þessar tillögur voru bornar upp:
1) „Fjórðungsþingið krefst þess, að vita-
gjöld séu eingöngu látin ganga til
byggingu nýrra vita og starfrækslu
vita, en ekki til annara óskyldra rík-
isþarfa**.
2) „Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþing-
ið að fara þess á leit við Alþing, að
settur verði viti annað livort á
Gjögri, austan Eyjafjarðar, eða á
Hrólfssker".
3) Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþing-
ið að sækja um það til Alþingis, að
mæld verði upp leiðin yfir rifið milli
Málmeyjar og Þórðarliöfða á Skaga-
firði, og að sett verði ])ar upp nauð-
synleg leiðarmerki“.
4) „Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþing-
ið að hlutast til um, að komið verði
i framkvæmd að setja hljóðdufl á
„Helluna“ fyrir utan Siglufjörð".
Allar þessar tillögur samþykktar í
einu ldjóði.
9. Sundkennsla og sundlaugar.
Þessar tvær tillögur voru samþykktar
með öllum atkvæðum:
1) „Fjórðungsþingið mælir með því, að
Ólafsfirðinguin verði veittur allt að
1000 kr. stvrkur af Fiskifélagssjóði
til byggingar sundlaugar; ennfremur
að Svarfdælingum verði veittur svo
ríflegur styrkur, sem unnt er, upp í
sundskálabyggingu þeirra. Loks að
stvrkur sá, er Fiskiþingið síðasta
veitti Svalbarðsstrendingum til sund-
hallarbyggingar, kr. 500.00, verði
greiddur þeim á árinu 1930, samkv.
umsókn þeirra“.
2) „Fjórðungsþingið leyfir sér að vekja
athygli Fiskiþingsins á því, hvort
ekki sé tímabært að fá það lögboðið,
að öllum piltum innan 14 ára aldurs
sé kennt sund“.
10. Síldareinkasalan.
Þessi tillaga var borin upp af Karli
Nikulássyni:
„Fjórðungsþingið mótmælir algjör-
lega þeirri ráðstöfun, að tveir bændur
ofan úr sveit séu skipaðir endurskoð-
endur Einkasölunnar — með öllu ó-
kunnugir þessari atvinnugrein, og telur
sjálfsagt að síldareigendur fái að út-
nefna annan endurskoðandann, að
minnsta kosti, þar sem verið er að ráð-
stafa þeirra eigin fé; óskar Fjórðungs-
þingið að Fiskiþingið komi þessum
mótmælúm áleiðis til stjórnarinnar“.
Samþykkt í einu hljóði.
11. Samvinna milli fiskifélagsdeild-
anna.
Þessi tillaga var horin upp af Páli
Ilalldórssyni:
„Fjórðungsþingið ályktar, að bezta