Ægir - 01.10.1931, Síða 8
Í96
ÆGIR
sóknir, nefnilega sjórannsóknirnar (rann-
sóknir á seltu og hita sjávarins) og átu-
rannsóknir utan síldartímans. Hinar eig-
inlegu síldarrannsóknir, sem gerðar eru
beinlínis vegna síldveiðanna, og einkis
annars, eru: 1. áturannsóknir (svifrann-
sóknir) við Norðurland og annarsstaðar,
þar sem síld er veidd, á meðan á síld-
veiðitimanum stendur, 2. magarannsókn-
ir (rannsóknir á síldarátu eftir mögum
síldarinnar), 3. síldarmælingar og 4. ald-
ursákvarðanir á síld. Auk þess má telja
allar þær hitamælingar, sem gerðar eru
til þess að skilja göngur síldarinnar, og
göngur þeirra dýra, sem sildin lifir á.
Hvað nú átu- eða svifrannsóknirnar
snertir, hefur verið safnað allmiklu af
svifi hæði við Norðurland, Vesturlandog
Austfirði.1 Söfnunin hefur verið falin
fiskiskipunum, og hafa þeim einnig ver-
ið afhentir hitamælar, til þess að gera
með hitamælingar. Svifinu ersafnaðmeð
strigaháfum, sem eru allir af sömu gerð
og sömu stærð, og skipin eru látin draga
háfana ákveðinn tíma með ákveðnum
hraða, eða látin gefa upp tímann og
hraðann ef útaf bregður. Á þenna hátt
fær maður upplýsingar um, gegnum hve
mikið sjávarmagn (mælt í rúmmetrum)
háfurinn hefur farið, og þar af getur
maður aftur fundið þéttleika átutegund-
anna eða fjölda einstaklinganna af hverri
tegund í hverjum rúmmetra. Aðferðiner
reyndar ekki mjög nákvæm, en mun þó
geta gefið nokkrar upplýsingar um átu-
magnið í sjónum. Allstaðar þarsem svifi
hefur verið safnað, hefur hitinn verið
mældur, en auk þess hafa um 20 fiski-
skip verið látin gera daglegar hitamæl-
ingar eftir því sem hentugleikar leyfðu,
einmitt um þann tíma, er sildin var að
hverfa, til þess að séð yrði, hvort hita-
1) Auk pess safna varðskipin átu kringum
allt land. allt áriö.
breytingar stæðu í beinu sambandi við
hvarf síldarinnar. Enn sem komið er,
hef ég einungis séð lítið eitt af útkomu
þessara mælinga, og get ég þvi ekki lagt
dóm á gildi þeirra að sinni.
Magarannsóknir hafa verið gerðar með
nokkuð öðru sniði, en áður hefur tíðk-
ast, nefnilega með það tvennt fyrir aug-
um: a) að finna hvaða átutegundir væru
yfirgnæfandi i fæðunni, og b) að finna
hve mikil áta væri í hverjum maga að
meðaltali. Á fyrra atriðið hefur jafoan
verið lögð mikil áherzla, en síðara at-
riðið hefur ekki verið tekið til meðferð-
ar hér við land fyr, svo ég viti. Fyrri
liður rannsóknanna miðar einkum að
þvi, að rannsaka hvaða átuflokkar og
átutegundir eru yfirgnæfandi í fæðunni
annarsvegar og ástand sjávarins, svo sem
híta, tima ársins og tíma dagsins hins
vegar, m. ö. o. að finna orsökina til þess
að þessi eða hinn áluflokkur eða átu-
tegund er yfirgnæfandi á þessum og þess-
um stað eða tíma. Hvað síðari liðnum
viðvíkur hef ég hagað rannsóknunum
þannig, að ég hef valið eins margar pruf-
ur og hægt hefur verið að komast yfir,
frá mismunandi stöðum og frámismun-
andi tíma. í hverri prufu hafa verið 10—
20 magar, og rúmmál átunnar í öllum
mögunum hefur verið mælt í rúmsenti-
metrum, og meðalrúmmál átunnar í
hverjum maga reiknað út. Takmark þess-
ara rannsókna er annarsvegar, að finna
sambandið á milli átumagnsins og hit-
ans í sjónum, o. s. frv., en hins vegar
að finna sambandið á milli átumagnsins
og aflamagnsins, á mismunandi stöðum,
og mismunandi tíma. Það hafa nú þegar
verið rannsakaðir á annað þúsund mag-
ar, eða á annað hundrað prufur, og mik-
ið er enn þá órannsakað. Til þess að
átta sig á gildi þessara rannsókna, verð-
ur öllu síldarsvæðinu skift niður í bil,