Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1931, Blaðsíða 20

Ægir - 01.10.1931, Blaðsíða 20
208 ÆGIH Varðskip í stað „Fylla“. 1 »Politiken«, sem nýlega er hingað komin, er þess getið, að búið sé að gera teikningar og áætlanir um smíði á nýju varðskipi, til að hafa landhelgisgæzlu á hendi hér við land í stað »Fylla«, sem er orðin gömul og eyðir miklu. Er svo frá skýrt, að hinir íslenzku full- trúar i lögjafnaðarnefndinn hafi krafist þess, að hingað kæmi nýtízku, velútbúið sk>p til að annast það starí, sem »Fylla« hefur haft á hendi undanfarin ár. Danir gátu engar ástæður fært gegn þessari kröfu, svo búast má við, aðbyrjað verði að smiða hið nýja varðskip í næstkomandi aprílmánuði, þegar búið er að smíða hið nýja konungsskip,- sem nú er unnið að. Smíði hins nýja varðskips er að vísu ekki á fjárlögunum dönsku, en allarlík- ur eru til að tillaga um það verði sam- þykkt í vetur. Færeysk fiskiskip heimkomin frá Grænlattdi og Islandi. Frá Grœnlandi: »Pólarfarið« . . »Kristine Gjógv« . »Karin« . . . . »Lillie« . . . . »Stella Maria« aflaði 100.000 fiska — 100.000 — - 73.000 - — 100.000 — — 110.000 — Færeyingar telja afla sinn enn í stykkj- um eins og lengi var gert, hér á landi, meðan skakskipin störfuðu. Skipshafnir taka togara á leigu. t*eg- ar það varð kunnugt snemma í haust, að nokkrir togaranna myndu eigi verða gerðir út á isfiskveiðar, vegna fjárhags- örðugleika og óhagstæðs markaðar, tóku skipshafnir þessara skipa, að ræða og í- huga það, hvort eigi mundi þess kostur að fá skipin á leigu. Hugmynd þessi var rædd í sjómanna- félaginu hér og var þar samþykkt, að fé- lagið léti þetta mál afskiftalaust. Kom svo málum, að samningar tókust um leigu á bv. »Andra« og »Ver« og fór »Andri« á veiðar 5. okt. en »Ver« 15. oktbr. Skipverjar allir eru hluthafar í útgerð- inni og annast nefnd, kosin úr hópi þeirra, framkvæmdir. */« af því sem afgangs er beinum útgjöldum er lagt í sjóð, sem geymdur er þar til endanleg skifti fara fram. Andri seldi afla sinn í Þýzkalandi 19. oktbr. fyrir 20.118 rikismörk, sem nemur rúmum 1200 £. Er það ánægju- legt að svo vel skyldi takasl byrjunin, og vonandi, að vel gangi áfram, þeir eiga það skilið sjómennirnir, sem hér riðu á vaðið í tvísýnu, til þess að afla sér og sínum lifsbjargar. Frá íslandi: »Solo« . . . . . aflaði 18.000 fiska »Fugloyggin« . — 33.000 — »Sæborg« . . . — 38.000 — »Phebe« . . . . — 31.000 — »Guðrún« . . . . — 28.500 - »Polarstjörnan« . — 42.000 - »Esther« . . . . 35.000 — »Haraldur« . . . — 25.000 — »Firth of Forth«. Þar hefur fiskur verið svo tregur undanfarið, að fjöldi línuveiðaskipa hefur hætt veiðum um stundarsakir. Hinn 22. septbr. var fiskkaupmanni Peter Forge i Billingsgate, send lúða frá Noregi, sem vóg 546 lbs. Er það hin stærsta lúða sem á Billingsgate-markað hefur komið. Lúðan seldist þegar.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.