Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1931, Blaðsíða 16

Ægir - 01.10.1931, Blaðsíða 16
204 ÆGIR Við létum svo skípið fara fulla ferð og losnuðum þannig við hvalinn, sem eftir því sem hann lét, virtist liða óþolandi kvalir. Stundum lá hann grafkj'r í sjávar- fletinum, tók síðan sprett og hentist hálf- ur upp úr sjónum. Að lokum stefndi hann að vesturslrönd Jótlands og hvarf. 111 meðferð á dýri. Peter Freuchen sendi »Politiken« grein um hval þann, sem um er getið hér á undan og birtist grein sú i blaðinu hinn 20. septbr, s. 1. Hann skrifar svo : Radio-blaðið flutti þær fregnir í gær, að dauður hvalur hefði fundist. Um leið var þess getið að einhverjir fiskimenn hefðu barist við þennan hval í marga mánuði og var auðheyrt, að menn voru hreyknir af þvi, einnig var þessgetið, að fiskimennirnir hefðu veitt honum stórt svöðusár á bakið og virtist frásögnin bera keim af sigurgleði. Eg vil leyfa mér að vekja athygli manna á þvi, sem hér fer á eftir, út af hinni hroðalegu meðferð á dýri þvi, sem hér um ræðir. Búrhvelið, á dönsku Kaskelot, á norsku Spermacethval, er fremur lítils virði. t*að er tannhvalur, hefur því eng- in skíði og varla er vinnandi úrspikinu, sem í fyrsta lagi er mjög hart, líkast tré og í öðru lagi, gefur það lítið lýsi. Auk þess er kjötið mjög óholt, ef ekki ban- vænt. Eftir frásögninni um bardaga fiski- mannanna við hvalinn að dæma, kemur það greinilega fram, að þeir hafa engin vopn haft meðferðis, til þess að vinna hval. Hvar eru nú dýraverndunarfélögin ? Eg minnist aumingja rostungsins, sem fyrir tveim árum, eða svo, viltist að Jótlandsskaga og var drepinn þar, eftir sárar kvalir og hörmungar og náðist fyrst eftir að fiskimenn þeir, sem eltu hann, höfðu skotið úr honum bæði aug- un með höglum. Búrhvelið gerir ekkert af sér. Það er voldug skepna og slík sjón, að hún gleð- ur þá rétthugsandi menn, sem fá að lita hana. Er óhugsandi, að þessar línur yrðu til þess, að mönnum þeim, sem eltast við stórhveli og önnur varnarlaus dýr, með því augnamiði að kvelja úr þeim lífið, væri bent á, að allur ávinningur þeirra verður að eins, fyrirlitning allra góðra manna. Orðugt ár fyrir danska fiskimenn. Það er lítið um fisk í Norðursjónum. Eftir því sem veiðar hafa gengið fram á þennan dag frá ársbyrjun, er óhætt að segja að árið 1931 verði fiskileysisár. Verðlækkun sú, sem hvervetna hefur orðið á neyzluvörum, en sem til þessa befur orðið miklu meiri á landbúnaðar- vörum en sjávarafurðum, er ekki eins um að kenna hve útkoma fiskimanna verður rýr í ár, eins og hve lítið hefur aflast af fiski. Fiskur er orðinn svn tregur í Norður- sjónum, að til vandræða horfir. Fiski- skipin flytja sig frá einum stað á annan til að leita að fiski og auka þær leitir út- gerðarkostnað mjög. Þannig hefur verið ástatt fyrir dönsku skipunum, sem stunda veiðar við Jótlandsstrendur, þau eru á- valt að leita að fiski og hið sama er um þau dönsku skip að segja, sem haldið hafa tíl á Doggersbank og fleiri skip hafa reynt fyrir sér við Hollandsstrendur þetta ár, en nokkurntíma áður. og hefur þar verið hin sama fiskitregða og annarsstað- ar, þar sem leitað hefur verið. (»Fiskeren« 23. sept. 1931).

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.