Ægir - 01.10.1931, Blaðsíða 17
ÆGIR
205
Skýrsla
erindreka Austfirðingafjórðungs
frá 1. júlí til 30. sept. 1931.
Eins og áminnst er i síðustu skýrslu
minni, þá lofaði ég yfirliti yfirafla i ver-
stöðvunum fyrir norðan Seyðisfjörð, i
þessari skýrslu, enda hægt að gera slíkt,
þar sem vertíð í þessum verstöðvum er
búin nú.
Yfirlit þetta verður þá þannig:
Borgar/jörður. Þar voru gerðir út 4
opnir vélbátar, sem öfluðu samtals um
100 skpd. í fyrra voru gerðir út 4 bátar
sem öfluóu þá 160 skpd. Það er því tæp-
lega 2/3 á móti fyrra árs afla. sem batar
þessir hafa fengið i ár. I Húsavík og á
Glettingsnesi var heldur engin útgerð í
ár.
Vopnafjörður. Þaðan gengu í ár 10
opnir vélbátar eins og i fyrra, og öfluðu
samtals um 290 skpd. En í fyrra öfluðu
þessir bátar 970 skpd. og þar að auki
öfluðu þeir og seldu nýjan fisk í ís, um
40 tonn, en í ár fengu þeir engan nýjan
fisk til að selja til ísunar. Hér er um
afarmikla afturför í aflabrögðum að ræða
sem stafar eingöngu af fiskileysinu.
Bakkafjörður. Þaðan gengu til veiða
11 bátar (6 opnir vélbátar og 5 róðra-
bátar). Aflafengur þessara báta var um
800 skpd. í fyrra voru bátarnir 8 alls,
og öflugu þá 700 skpd.
Gunnólfsvík og Hafnir. Þar voru gerð-
ir út 7 opnir vélbátar, sem fengu 340
skpd. í fyrra var sama bátatala ogsama
skpd. tala af fiski, sem saltaður var, en
þá seldu þessir bátar töluvert af nýjum
fiski til ísunar.
Skálar. Útgerð þar var meiri en í fyrra,
því þaðan voru gerðir út 16 bátar, 13
opnir vélbátar og3róðrabátar, sem færðu
á land rúm 700 skpd. í fyrra voru bát-
arnir 12 og öfluðu rúm 800 skpd. og að
auk um 40 tonn af isfiski.
1 fyrra var aflað og selt á þessum ver-
stöðvum, um 120 tonn af nýjum fiski
sem fluttur var út í ís. En í ár hefur
ekkert verið selt af slikum fiski, sem
stafar beinlínis af fiskileysi á þessum
stöðum. Ef litið er yfir aflaskýrslurnar,
þá sést að ýsu-afli hér eystra er langtum
minni en í fyrra. Sérstaklega var lítill
afli af ýsu á þessu svæði, sem er nokk-
uð óvanalegt.
Á fjörðunum frá Seyðisfirði til Djúpa-
vogs, hefur á þessu tímabili aflast um
8920 skpd. en á sama tíma í fyrra rúm
12000 skpd. Þar að auki hefur á þessu
tímabili verið aflað og selt sem ísfiskur,
nálega 400 tonn.
Verð á saltfi«ki hér eystra á þessu
tímabili var almennt 24 aurar fyrir þorsk
og 17—18 au. fyrir smáfisk. Þurrfisksalan
hefur verið treg. Um 700 skpd. af fiski
var selt hér á Seyðisfirði snemma i á-
gúst og var selt á 88 og 90 kr. skpd. af
prima þorski. Síðan var selt hér aftur í
sept., en það var selt í umboðssölu og
borgað út við afskipun 68—70 kr. skpd.
fyrir prima þorsk, en 44 kr. fyrir labra.
Síldveiðin hér varð minni f ár en í
fyrra. t ár veiddust um 83001 tonn, en í
fyrra rúmlega 10900. Hér á Seyðisfirði
var mikið minni síldveiði en f fyrra.
Hversu mikið hefur veiðst af sild og sett
á frosthús hér eystra, hef ég ekki fengið
skýrslu um enn þá.
Eg hef svo ekki meira að setja á þessa
skýrslu að svo stöddu, heildar yfirlit set
ég 1 lokaskýrsluna. svo þetta læt ég því
nægja í þetta sinn.
Seyðisfirði 5. okt. 1931.
Hermann Porsteinsson.