Ægir - 01.10.1931, Qupperneq 22
210
ÆGIR
Fjóröungsþing
Fiskideilda i Sunnlendingafjórðungi verður háð i Kaupþingssalnum í Reykjavík,
föstudaginn 27. nóvember næstk. og hefst kl. 1 e. h.
Deildir eru minntar á, að fylgja stranglega ákvæðum laga um fulltrúakosn-
ingu til fjórðungsþings.
Akranesi 17. okt. 1931.
Fyrir hönd fjórðungsstjórnar.
01. B. Björnsson.
Vitar og sjómerki.
Auglýsing fyrir sjómenn 1931.
22. Sjómerki nr. 71, Skorbein, hefur
verið endurreist.
23. 1 NA af Hafnartanga austan við
Borgarfjörð eystra er boði, Gálmur,
sem ekki er sýndur á sjókortunum um
600 m frá landi. Á honum er 10 m dýpi,
og brýtur á honum í sjógangi, í miklum
sjógangi jafnvel alla leið milli hans og
lands. Innsiglingin á Borgarfjörð að aust-
an er frí af Gálmi þegar Álfaborg er laus
við Hafnartanga.
24. Segulskekkju hefur nýlega orðið
vart við, á ca. 66°30' n. br., 22°20' v. 1.,
um 4 sm. frá Hornbjargi. Skekkjan var
allt að 10°. (Efterretninger for Söfarende
nr. 35 1931.
25. Sker hefur fundist á Húnaflóa á
ca. 65° 45',6 n. br., 20°49',5 v. 1. Á sker-
inu mun vera 6 m. dýpi (Efterretninger
for Söfarende nr. 35 1931, samkvæmt til-
kynningu frá e.s. Petsamo).
26. Hornbjargsvitinn (nr. 43) sést fyrir
austan stefnu 166°, en þar fyrir vestan
er hann í skjóli af bjarginu.
27. Samkvæmt tilkynoingu frá Sigurði
Hallbjarnarsyni skipxtjóra á Akranesi, er
grynni á Skagafirði sem ekki er sýnt
i kortunum. Mið grynnisins eru:Kiögur-
nöf i Þórðarhöfða aðeins laus við Malm-
ey, og Reykjadiskur í norðurenda Tinda-
stóls. Grynnið mun vera litið um sig,
dýpi á því ca. 20 m. Breidd ca. 65°
50 V*' n., Iengd ca. 19 ° 30' v.
28. Samkvæmt tilkynningu frá sama
manni er annað grynni á Skagafirði,
austur af Selnesi í miðunum norðurendi
Drangeyjar lítið eitt utar en húsin i Kolku-
ósi og norðurendi Máimeyjar i Dalatá*
Grynnið er langt, frá austri til vesturs,
en mjótt í norður til suðurs Dýpi á því
er ca. 36 m. Breidd ca. 65 ° 58l'/a, lengd
ca. 19 0 45' v.
29. Á Raufarhafnarvitanum var kveikt
4. þ. m., og sýnir hann hvitan, rauðan
og grænan þriblossa á 20 sek. bili: 1 +
3 + 1+ 3 + 1 + 11= 20 sek. Ljósmagn
og ljósmál hvita ljóssins 14 */» sm., rauða
12 og græna 11 sm. Ljósið er rautt f. n.
233°, hvítt frá 233° — 294°, grænt f. s.
294 °. Vitabj'ggingin er 6 7« m hár, fer-
strendur, grár turn með 37s m háu gráu
Ijóskeri. Hæð logans yfir sjó er ca. 33 m
Breidd ca. 66 0 27'. Lengd ca. 15 0 56 '.
Logtími 1. ág. til 15. maí.
Vilamálnstjórinn
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
RíkisprentsmiSjan Gntenberg.