Ægir - 01.05.1933, Page 11
ÆGIR
129
að ca. helmingur »platningarinnar« sé á
lofti, og helzt yíir sjó og óþélt, svo að
kalda sjávarloftið leggi npp í skúrana.
Eg hugsa mér þá gerða úr bárujárni á
trégrind, veggi og þak. Mundu þeir þá
kosta uppsettir með öllu, gluggum og
hurðum, en án síldarkassanna og spor-
anna kr. 10 þúsund. Eru þar með tald-
ir geymsluskúrarnir«.
Einn áberandi galla hef ég þó rekið
mig á í þessari teikningu Sveinbjarnar,
en það er, að hann gerir þarna ráð fyr-
ir 4 pækilkerum. Haganlegast virtistmér
að hafa aðeins eitt ker og stæði það
fyrir utan skúrana og svo háttað að hafa
mætti eina leiðslu frá því í gegnum skúr-
ana undir þakinu, með afrennslislásum
hér og þar, sem setja mætti á togleðurs-
slöngu, svo að einn maður gæti gengið
eftir tunnuröðunum og pæklað tunnurn-
ar, í staðinn fyrir allan þann pækil-
burð, sem nú almennt tiðkast á síldar-
stöðvum. Mætti þá nota sömu dæluna
til að dæla vatninu upp í pækilkerið og
notaður er til þess að fylla geymslu-
þrærnar.
Annars vildi »Ægir« mælast til þess, að
þeir sem lengi hafa fengist við síldar-
verkun og sérstaklega eru kunnugir hvern-
ig hagkvæmast væri að starfa að verk-
uninni og haga útbúnaði stöðvarinnar í
heild sinni, gerðu tillögur um það, og
mundi blaðið fúslega birta greinar um
þetta efni, væru þær hæíilega langar.
Kr. Bergsson.
Þorskafli Norðmanna 1933. Hinn 13.
maí þ. á., var vertíðarafli Norðmanna
þessi:
Ár Afli alls Heri Saltað Lifur
1933 125 406 44 413 73 552 sml. 71 683 hl.
1932 146 974 60 767 77 116 — 88133 -
Skýrsla
frá fiskifulltrúanum á Spáni.
Prolongation Urgell, 4—5.
Barcelona 25. marz 1933.
Nú stendur yfir hið daufa tímabil,
sem venjulega kemur eftir páska, þegar
neyzlan á saltfiski er með minnsta móti.
Salan gekk þó all vel dymbilvikuna,
svo að nú er ekki talið, að birgðir hér
f Barcelona, séu nema tæplega 1000 lestir.
Eru þær hér um bil allar hjá Hortet,
því hinir innflytjendurnir hafa selt upp
birgðir sínar og eru nærri fisklausir.
Er því nokkur undirbúningur undir,
að nýi fiskurinn komi, og ganga hér
ýmsar sögur um, að Fisksölusambandið
ætli sér að fela tveimur innflyljendum
einkasölu á íslenzkum fiski hér i Kata-
lóníu. Hef ég auðvitað borið þær til
baka jafnóðum, enda væri slikt ekki
nema til þess að hleypa færeyska fisk-
inum enn betur inn á markaðinn, en
áður.
Einnig er nokkur eftirvænting um það
hvert verð verði sett á það, sem fyrst
kemur af nýja fiskinum. Færeyingar
bjóða nú sinn fisk fyrir 26 sh., en geta
auðvitað selt ódýrara en áður, vegna
falls dönsku krónunnar. Fyrir okkur
verður nauðsynlegt, að leita nokkuð fyrír
okkur um það, hvaða verð markaðurinn
þolir, og setja það ekki of hátt í byrjun.
Liggja til þess tvenn rök.
Önnur eru þau, að markaðurinn er
allt af betri viðureignar, ef búist er við
hækkun á verði frekar en lækkun, svo
sem allir kannast við.
Hin er sú, að svo virðist, sem kaup-
geta sé með minnsta móti um þessar
mundir. Má vera, að þelta sé að eins
millibils ástand, þangað til vinna byrjar