Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1933, Síða 4

Ægir - 01.11.1933, Síða 4
254 ÆGIR unar og til útgáfu þjóðernis- og skrá- setningarskirteinís fyrir skipið. 2. dæmi: Samkv. 2. málsgr. 6. gr. of- angreindra laga, skal skrá skip, sem er undir 30 rúmlestum, þar sem eigandi þess á heima; séu þeir fleiri en einn og eigi ekki heima í sama umdæmi, mega þeir velja um staðinn. N. N. kaupir skip, sem er undir 30 rúmlestum, frá Akureyri, en er sjálfur búsettur í Hafnarfirði. Nú verður N. N. að fá skráningu skips- ins flutta frá Akureyri til Hafnarfjarðar, samkvæmt því sem áður er sagt. Þegar N. N. hefur fengið í hendur eignarheimild sína á skipinu, fer hann til lögreglustjórans í Hafnarfirði, sýnir honum eignarheimildina og æskir þess við hann, að skráning skipsins verði flutt frá Akureyri til Hafnarfjarðar, og um leið á eigandi skipsins að útfylla beiðni um skráninguna, og þjóðernis- og eign- aryfirlýsinguna. — Eyðublöð þessi fást hjá öllurn lögreglustjórum. — Því næst er lögreglustjóranum á Akureyri skrifað eða símað og hann beðinn að strika skipið út úr bókum umdæmis sins og senda vottorð um það ásamt þeim skrán- ingarskjölum skipsins, sem hjá honum eru, til lögreglustjórans i Hafuarfirði. Eftir að lögreglustjóri heíur veitt öll- um nauðsynlegum skjölum til skráning- arinnar, móttöku, skráir hann skipið í bækur sínar, en sendir síðan öll skjölin til skipaskráningarstofunnar, til end- urskoðunar og útgáfu nýs mœlinga- bréjs. Eg skal taka það fram hér, að það getur í nokkrum tilfellum verið vand- kvæðum bundið að fá skráningu skips flutta milli umdæma, vegna veðbanda, sem á þeim hvíla, en undir flestöllum kringumstæðum, eru þau hverfandi. 3. dæmið: Opinn bátur skal alltafvera skráður í því umdæmi er eigandi hans á heima. Þegar skrá skal opinn bát, lælur eig- andi mæla bátinn, síðan fær hann eyðu- blað hjá hlutaðeigandi lögreglustjóra, »Beiðni um skráningu á opnum bát«, útfyllir það að öllu leyti og afhendir það siðan lögreglustjóra, er svo skráir bátinn á sama hátt og áður er getið. Hafi eig- andi afsal, ber að láta það fylgja með. Um flutning á skráningu opins báts, milli umdæma, gildir það sama og áður er sagt. Þegar lögreglustjórarnir hafa skráð skip, sem er fiskiskip, gefa þeir því fiski- veiðaskírteini. Um eigendaskipti á skipi, segir svo í 16. gr. laga nr. 37, 19. maí 1930, um skráningu skipa. Ef eigendaskipti verða að skipi eða skipshluta, þá ber eiganda eða eigendum bæði núverandi og fyrverandi eiganda, að skýra lögreglustjóra frá því innan 4 vikna ásamt sönnunum fyrir heimild sinni og þeim öðrum skílrikjum, sem nauðsyn er á, svo að skráin verði leið- rétt samkvæmt því. Þessi grein þarf engrar skýringar með, en rétt er að geta þess, að brot á þess- ari grein varða sektum samkvæmt 24. gr. áður greindra laga, allt að 2000 kr. Þá kem ég að nafnabreytingunni á skipum. Því miður kemur það alltof oft fyrir, að breytt sé um nafn á skipi, og það í algerðu heimildarleysi og jafnvel settar umdæmistölur á skip, lika í heimildar- lejrsi. Það mun oft vera svo, að mörgum skipaeigendum finnst það óþarfa afskipta- semi að vera að fást um það þó skipt sé um nafn á þeirra eigin skipi nokkr- um sinnum, og dæmi veit ég til þess að maður sem átti opinn bát og hafði feng-

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.