Ægir - 01.11.1933, Page 8
258
ÆGIR
Á þriðjudaginn 7. var enn leitað, en
sú leit var árangurslaus og var þó leitað
til mánudagskvelds og er nú talið víst,
að Fram hafi farist og með bátnum fjór-
ir eftirtaldir menn.
Helgi Sigfússon, formaður, tengdason-
ur Jóns Jóhannessonar, fiskimatsmanns
á Siglufirði. Lætur hann eftir sig ekkju
og tvö börn ung.
Vélamaður á bátnum, Arngrímur Jóns-
son frá Dalvík, ungur maður. Hinir tveir,
Megvant Megvantsson frá Máná og Jón
Valdimarsson, aldraður maður frá Dal-
vik.
Að þessum meðtöldum, er tala drukkn-
aðra íslendinga hér við land, 68, talið
frá áramótum s. 1. Hve margir útlend-
ingar hafa drukknað við Island á þessu
ári, er óvíst, en hópur sá er stór.
Veðurathugunarstöðin í Papey.
Vegna ummæla erindrekans i Aust-
firðingafjórðungi í síðasta tbl. Ægis vil
ég skýra frá þvi, að mér er eigi kunn-
ugt um það, að komið hafi til orða að
hætta við veðurathuganir 1 Papey, en þær
hafa verið gerðar þar daglega síðan um
síðustu aldamót eða yfir 30 ár. Gisli
bóndi í Papey sendir veðurstofunni mán-
aðarlega skýrslu um þessar veðurathug-
anir. En vegna þess að ýmislegt í áður-
nefndri skýrslu bendir til þess, að þar
sé ekki átt við þessar veðurathuganir,
heldur veðurskeyti frá Papey, þá vil ég
ennfremur taka það fram, að veðurstof-
an hefur eigi hingað til fengið veður-
skeyti þaðan. Að vísu vildi veðurstofan
um eitt skeið fá veðurskeyti þaðan og
meðfram vegna þess átti að koma á
skeytasambandi milli lands og eyjar, en
með því að dráttur varð á þessu, gat
veðurstofan eigi beðið eftir því og kom
upp i þess stað veðurskeytastöð á Vatt-
arnesi. Samt sem áður, þegar skeyta-
sambandið við Papey síðar komst á, þá
var hafinn undirbúningur til þess að fá
veðurskeyti þaðan. En það var eigi fyr
en um síðustu áramót, að veðurstofan
fékk tilkynningu frá Papey, að veður-
skeytin þaðan gætu byrjað, en þá var
eigi hægt að fá samning við Landsím-
ann um flutning veðurskeytanna, vegna
þess að í ráði var að leggja niður, þá
bráðlega, símastöðina í Papey. Veður-
stofan verður nú að bíða eftir því, að
annaðhvort verði símastöð sett þar upp
aflur, eða samningur komist á um ann-
arskonar skeytasamband við eyna, er
tryggi það, að veðurstofan fái þaðan veð-
urskeyti í framtíðinni.
Reykjavik 11. nóv. 1933.
Porkell Porkelsson.
Frá utanríkismálaráðuneytinu.
í sambandi við fyrri bréf um inn-
flutningstoll á íslenzkri síld i Póllandi,
skal Fiskifélagi Islands tjáð, að gildi heim-
ildarinnar, sem pólski fjármálaráðherr-
ann hefur haft til þess að lækka síldar-
tollinn niðnr i J/3 af ákvæðistolli gild-
andi tollaga, hefur verið framlengt til
30. april 1934. Þetta á þó því að eins
við, að ekki fari meira en 60 síldar í 10
kiló.
Til sama tíma hefur fjármálaráðherr-
ann pólski heimild til þess að lækka
tollinn á þurkuðum saltfiski niður í ]/s
af ákvæðistolli tolllaganna, þ. e. úr 50
zloti í 10 zloti pr. 100 kg. (1 sterlings-
pund er 28Va zloti).