Ægir - 01.11.1933, Qupperneq 19
ÆGIR
269
h. Hafnarbætur á Akranesi.
i. Lög Fiskifélagsins.
/. Erindrekstur Fiskifélagsins í Norðurl.
k. Styrkveitingar.
l. Merking veiðarfæra.
m. Síldarbræðslusföð í Norðurlandi.
n. Vitamál.
Þegar hér var komið, óskaði forseti
þess, að allir fulltrúar störfuðu saman að
undirbúningi til úrlausnar þessara mála
á þinginu.
Þá var fundi slitið þetta kvöld, en á-
kveðinn kl. 4 e. h. daginn eftir.
Hinn 19. nóv. kl. 4 e. h., var fundur
settur á ný og þá tekið fyrir og samþ.
eftirfarandi tillögur og ályktanir.
1. Fjórðungsþingið skorar á fiskút-
flytjendur að standa saman um Fisk-
sölusambandið, en brýnir hinsvegar fyr-
ir íisksölunefndinni, að slanda vel á verði
um öll þau atvik, sem valdið geta óá-
nægju hinna ýmsu útgerðarmanna, svo
það þurfi ekki að spilla félagsskapnum
og heillavænlegum árangri, sérstaklega
meðan svo stendur að ekkert má fara í
handaskolum.
2. Fjórðungsþingið skorar á alla sjó-
menn landsins og hugsandi fólk,að styðja
i orði og verki hverskonar slysavarnir.
því það er allt senn, fjárhags- mannúð-
ar- og menningarmál.
3. Fjórðungsþingið lítur svo á, að hin
nýjustu taltæki, séu eins og nú standa
sakir, eitt hið öruggasta björgunartæki
sem til er og skorar á alla útgerðarmenn
að koma slíkum tækjum í báta sína,
helzt fyrir næstu vertíð.
4. Fjórðungsþingið skorar á sjómenn
í öllum verstöðvum við Faxaflóa að
teggja nokkrar krónur af árlegum hlut
sínum i björgunarskútusjóð, svo að þessu
nauðsynlega máli verði fljótlega komið í
höfn. Fjórðungsþingið þakkar Siglfirð-
ingum það lofsverða dæmi, sem þeir
sýndu síðastliðið vor í hliðstæða átt, þar
sem allir bátar þeirra réru einn dag til
ágóða fyrir björgunarskútusjóð sínn.
5. Fjórðungsþingið lýsir ánægju sinni
yíir dugnaði þeirra manna, sem hrundið
hafa af stað innlendri veiðarfæragerð og
skorar á alla útgerðarmenn að styðja
þetta innlenda fyrirtæki sem bezt þeir
mega.
6. Fjórðungsþingið vill benda á það
sem fullkomið alvörumál, sérstaklega
gagnvart togaraflotanum, hve hann með
ári hverju rýrnar og gengur úr sér, án
þess að um hæfilega endurnýjun sé að
ræða. Með hliðsjón af þessu vill fjórð-
ungsþingið beina þvi til stjórnar Fiski-
félags íslands, að taka til yfirvegunar,
hvort ekki sé hægt og á hvern hátt, megi
koma hér við ellitrygging skipa.
7. Fjórðungsþingið treystir þvi, að Al-
þingi viðurkenni starf Fiskifélagsins í
þágu sjávarútvegsins, með því að veita
því svo ríflegan styrk árlega, að starf-
semi þess bíði ekki hnekki af þeim or-
sökum.
8. Fjórðungsþingið skorar á rikisstjórn-
ina að hafa gæzlubát í Faxaflóa á hættu-
mestu tímum ársins, þangað til hin fyr-
irhugaða björgunarskúta fyrir Faxaflóa
kemur.
9. Fjórðungsþingið skorar ástjórn Fiski-
félagsins, að hlutast til um það við rík-
isstjórnina. að eftirlitsskip Vestmanna-
eyja, hafi einniggæzlu á bátum frá Stokks-
eyri og Eyrarbakka á tímabilinu frá 1.
febr. til 31. maí ár hvert.
10. Þar sem á síðustu árum mikið hef-
ur verið deilt um notin annars vegar og
framtíðarhættu hins vegar af dragnóta-
veiði í landhelgi, skorar fjórðungsþingið
á þing og stjórn að hrapa að engu að
úrslitum málsins, án þess að afla sér hjá
sjómönnum víðsvegar að, þeirrar reynzlu,