Ægir - 01.11.1933, Síða 20
270
ÆGIR
sem fengist hefur á þessu veiðarfæri á
hinum ýmsu stöðum.
11. Þar sem fjórðungsþingið lítur svo
á að smábátaútvegurinn sé sá áhættu-
minnsti, en um leið að ýmsu leyti sá
notadrýgsti fyrir þjóðarheildina, skorar
fjórðungsþingið á Alþingi og ríkisstjórn
að greiða fyrir þvi, að þessi útvegur hafi
nægilegan aðgang að áriegu rekstursfé,
svo ekki þurfi þess vegna að sæta hvers
konar afarkostum um árlegan rekstur.
12. Fjórðungsþingið skorar á Alþingi
og ríkisstjóru að segja upp norsku samn-
ingunum svo fljótt sem verða má, þar
sem ívilnanir til Norðmanna eru þeim
margvislega mikils virði, en geta hins
vegar verið okkur mjög skaðlegir, enda
þótt til þess tæki ekki verulega síðast-
liðið sumar.
13. Fjórðungsþingið skorar á næsta
Fiskiþing, að beita áhrifum sínum í þá
átt, að næsta reglulegt Alþingi veiti á
fjárlögum ritlegan styrk til áframhalds
byggingar hafnargarðs á Akranesi.
14. Fjórðungsþingið skorar á stjórn
Fiskifélagsins, undantekningarlaust, að
leggja fyrir næsta Fiskiþing, breytingar á
lögum Fiskifélagsins í þá átt sem fram
komu á síðasta þingi.
15. Fjórðungsþingið lýsir ánægju sinni
yfir húsbyggingu félagsins og auknum
starfskröftum (Þórðar Þorbjarnarsonar
fiskiðnaðarfræðings), og telur að félagið
hafi með því mjög aukið við möguleika
sína til þess að vinna málum sjávarút-
vegsins gagn.
16. Fjórðungsþingið vitir stjórn Fiski-
félagsins fyrir aðgerðaleysi í því að halda
saman, eða stofna fiskideildir í fjórðung-
unum og hafa áhrif á störf þeirra, og
telur að hún hafi í því falli minna gert
en erindrekar félagsins í öðrum lands-
fjórðungum til þess að viðhalda og tryggja
starfsemi deildanna og samband þeirra
við aðalstofnunina og krefst þess, að er-
indreki verði sendur í allar veiðistöðvar
nú þegar til tilrauna í þessa átt og síðar
meir, þó ekki væri nema að hausti eða
vetrarlagi.
17. Eftirtaldar fjárhæðir samþykkir
fjórðungsþingið að veita af sjóði sínum
með hér greindum skilyrðum.
a. Að fénu sé varið í samráði við íjórð-
ungsstjórnina, eftir fjárhæð i hverju til-
felli, til þess sem að mestu gagni getur
komið í viðkomandi veiðistöð.
b. Að féð sé ekki greitt fyr en að upp-
fylltu þessu skilyrði, og að því að verk-
ið sé fullkomið, eða að svo verði gert:
Til Eyrarbakka . . . 500 kr.
Til Stokkseyrar . . . 500 -
Til Akraness . . . 500 —
Til Keflavikur . . . 250 —
Til Voga á Vatnsl.str. 100 -
Til Grindavíkur. . . 150 —
Samtals 2000 kr.
18. Fjórðungsþingið heimilar stjórn
sinni að verja allt að 300 kr., ákveðnum
manni eða mönnum i ferðakostnað milli
deilda, til þess að vekja þær og hvetja
til starfa eða að stofna deildir þar sem
því verður viðkomið.
19. Að gefnu tilefni telur fjórðungsþing-
ið rétt að safnað verði rækilega á næsta
ári, veiðaríæramerkjum i markaskrá fyr-
ir Sunnlendingafjórðung og þá gefin út.
Að því loknu telur fjórðungsþingið rétt,
að skráin sé gefin út þriðja til fimmta
hvert ár, en ný mörk á þessu millibili
verði jafnan birt í »Ægi«.
Að þessu loknu var fundi frestað og
hann ákveðinn næsta dag kl. 1 e. h.
Hinn 20. nóv. kl. 1 e. h. var fundur
settur á ný. Eftirfarandi var tekið fyrir
og samþykkt samhljóða atkv.
20. Fjórðungsþingið skorar á vitamála-
stjórnina að setja sem allra fyrst upp