Ægir - 01.06.1934, Qupperneq 7
ÆGIR
133
gereyðilögð. En svo litið þarf til þess að
þau hrynji, að hættulegt er að hafa þau
uppistandandi.
Timburhús eru þarna fleiri en stein-
hús. Mörg þeirra eru ibúðarhæf, en flest
skemmd og það meira en séð verður
utan á þeim, í fljótu bili. Hafa þau t. d.
skekkst, skilrúm í þeim skemmst, dyra-
urnbúningar og þessháltar. Mest sést af
skemmdum á grunnum þeirra, sem hafa
mjög sprungið, og dottið úrþeim stykki.
Svo mikill hávaði fylgdi jarðskjálftan-
um, að menn í Dalvík héldu fyrst að
orðið hefði ægileg sprenging.
Þegar fólk þusti til dyra úr húsunum,
gengu hurðir ekki upp víða, vegna þess,
að dyraumbúningur skekktist.
Tveir menn voru t. d. staddir í smiðju
einni. Hlupu þeir á hurð smiðjunnar,
er jarðskjálftinn kom, en fengu ekki bif-
að henni.
En rétt á eftir féll einn smiðjuveggur-
>nn alveg, og þutu mennirnir þar út,
sem veggurinn hafði verið.
Þegar fólk í einu húsinu var komið
út í anddyri þess, og ætlaði að rjúka
út, vildi svo til að kvistur, sem verið
hafði á húsinu féll niður rétt framan
við dyrnar. Munaði mjög litlu, að fólkið
yrði undir þeirri skriðu.
í einu húsi í Dalvík hafði kona alið
harn rétt áður en jarðskjálftinn kom.
Húsið, þar sem sængurkonan var, skemd-
ist mikið, féll t. d. úr því hálfur stafn.
Hrundu flísar úr veggjum yfir konuna
i rúminu. Varð henni þó bjargað ó-
nieiddri.
Þessar skemmdir urðu á húsum í
Svarfaðardal, auk þeirra, sem áður hef-
ur verið sagt frá :
Stórt steinhús á Karlsá skemmdist
mikið, og peningshús sprungu og skekt-
ust.
Á Upsum og Efstakoti skemmdust
bæjarhús mikið. Á Svalbarði við Dalvík
féll stafn úr húsi.
Á Hóli eyðilagðist steinhús að mestu.
Á Ölduhrygg féll fjós, og náðust
kýrnar út með naumindum. Á Gullbringu
og Grund féllu bæir að mildu leyti. Á
Hrísum og Ytra-Garðshorni féll mikiðaf
peningshúsum. Viðar hafa peningshús
laskast og jafnvel fallið.
Viða í Svarfaðardal og á Árskógsströnd
komu sprungur í jörð. Eru sprungur
þessar allt að því fet að vídd. Sumstað-
ar hafa melhólar klofnað.
Steinhús eitt fékk sprungu skammt of-
an við jörð og náði sprungan gegnum
alla veggina, svo húsið varð laust af
grunni og kastaðist til um nokkra sentí-
metra.
Á 10—12 bæjum í Svarfaðardal hafa
hús fallið meira og minna.
Á Hrappstaðakoti t. d. eru peningshús
öll fallin, en bærinn hangir uppi. Þar
var byrjað að bjrggja steinsteypuhús.
Hafði verið komin steypa í kjallaramótin.
En allt það mannvirki jafnaði jarðskjálf-
inn við jörð.
í Hrísey urðu miklar skemmdir og
eru þær helztu þessar:
Fimm ibúðarhús eru það skemmd, að
ekki verður í þeim húið, en ekkert hef-
ur fallið. Kirkjan er slórskemmd, laus á
grunni öðru megin og turninn rifinn frá,
en stendur þó uppi. Nokkur útihúshafa
fallið, en skólahúsið óskemmt.
Hræringar hafa verið alla vikuna frá
3.—10. júní og halda áfram.
1 fyrstu var eignatjón, sem hlaust af
jarðskjálftanum, áætlað 200 þús. krónur,
en er nánar var athugað, var það talið
400 þúsund kr. og þar sem meira kem-
ur daglega í Ijós af skemmdum mun ó-
hætt að áætla það hálfa miljón og er
hér um beint tjón að ræða, þar sem
skaðabætur fást engar greiddar, því ekk-