Ægir - 01.06.1934, Síða 8
134
ÆGIR
ert hefur verið vátryggt fyrir jarðskjálft-
um.
Dagana næstu eftir aðalkippinn, var
fólk furðu rólegt og farið að jafna sig;
hélt það til í tjöldum, sem send höfðu ver-
ið frá Akureyri og víðar, en hræringar
hafa stöðugar verið, en þó vægar og var
fólk farið að gera sér góðar vonir um,
að geta flutt inn í húsin, en laugardags-
kvöldið 9. júní komu tveir kippir í Dal-
vík og víðar og einn á sunnudagsmorg-
un hinn 10. Mánudagskvöld hinn 11.
kom snarpur kippur í Dalvík og Svarf-
aðardal kl. 7 og annar kl. 810, svo ekki
þótti tiltækilegt að flytja í húsin að svo
stöddu. Bjargráðanefnd og samskota-
nefndir hafa verið kjörnar og fjársöfnun
um allt land var þegar hafin, er um
tjónið fréttist og hafa undirtektir verið
með afbrigðum góðar.
Útvarp og blöðin hafa flult landsmönn-
um daglegar fréttir um atburði, miklu
nákvæmar en hér er gert, en aðaldrætt-
ir eru þeir, sem hér er getið og ná fram
að 12. júní.
t*að kemur æ betur og betur í ljós
eftir því sem tíminn liður, að skemmdir
og tjón er meira og minna fram með
Eyjafirði, jafnt austan sem vestan. Skriðu-
hlaup hafa komið úr fjöllum og ár hafa
vaxið og Skagaljarðar undirlendi var
sem einn fjörður í byrjun mánaðarins.
Námskostnaður um síðustu aldamót.
Arin kringum 1900 var meðaltal ment-
unarkostnaðar manna talið svo:
Skipstjóranám .... . kr. 490
Búfræðinám . — 560
Möðruvallaskólastúdent . . — 780
Prestaskólakandidat . . . — 1715
Læknaskólakandidat . . . - 3500
Latínuskólastúdent . . . — 2190
(Úr Almanaki Pjóðvinafél. 1901).
Sumarveiöar
viö Grænland.
Eins og að undanförnu, eru Norð-
menn hinir fyrstu, sem búa sig til veiða
við Grænland í vor. 1 byrjun aprilmán-
aðar var undirbúningur hafinn og unn-
ið af kappi allan mánuðinn. Álasund
má telja heimkynni hins norska fiski-
flota og þaðan héldu tvö leiðangursskip
norsk, áleiðis til fiskimiðanna, um miðj-
an maí.
Krossvíkur-leiðangurinn hefur 100
norska fiskimenn á móðurskipinu; Thors-
havns-leiðangurinn hefur skráð 250 fiski-
menn, á móðurskipið »Thorland«.
1 Krossvikurleiðangrinum eru auk
móðurskipsins, hvalveiðabátarnir »Odd«,
»Hauken« og »Sebaldi«. Þeir stunduðu
hvalveiðar i fyrra en þær brugðust; var
búist við líku þetta ár og verða þeir nú
notaðir sem línuveiðaskip við Grænland.
Skipinu »Thorland« fylgja mótorbát-
arnir »Juvel« og »Iíoralen«.
Ennfremur var móðurskip Helders-
leiðangursins, »Arctic Queen« útbúið til
veiða í Aalesund og skráði 200 norska
fiskimenn.
Til Aalesund kom »Arctic Queen« hinn
2 mai.
Innflutningur.
Samkvæmt skýrslum þeim, sem Hag-
stofunni hafa borist, hel'ur verðinæti inn-
flutningsins fyrstu 5 mánuði ársins num-
ið þriðjuDgi meira heldur en á sama
tíma í fyrra. Innflutningurinn er 5.2 milj.
króna hærri heldur en útflutningurinn,
en var í fyrra 0.5 milj. kr. hærri en út-
fiutningurinn þá.