Ægir - 01.07.1935, Blaðsíða 4
142
Æ G I R
Hafrannsóknaskipið »Dana«
sekkur í Norðursjónum eftir árekstur.
Laugardaginn 22. júní sigldi þýzkur
togari á »Dana«, er hún lá kyr í þoku
í Norðursjónum og gaf aðvörunarmerki,
með jöfnu millibili. Brotnaði hún svo
við áreksturinn, að 30 mínútum eftir
söklc hún, og mátti því engu muna, að
mannbjörg yrði, en veður var gott og
renndi togarinn að hlið »Dana« og tók
þá, sem ekki fóru í skipsbátinn. Timi
vannst ekki til að bjarga, hvorki fatnaði
né verðmætnm hlutum, skjölum, dag-
hókum og vísindalegum skýrslum, því
10 mínútum eftir áreksturinn, var fram-
partur skipsins kominn í kaf og ekki
vitað, hvenær ketilsprenging gæti orðið.
Skipstjóri á »Dana« var G. Hansen,
sem margir hér kannast við, og hefur
verið skipstjóri skipsins, síðan það hóf
rannsóknarstarf sitt. Fyrir sjálfu rann-
sóknarstarfinu stóð Dr. phil. Yedel Tá-
ning, sem tók við því af Próf. Schmidt,
sem lézt 22. febrúar 1933; liafði Dr. Tá-
ning lengi með honum unnið.
15 ára skýrslur og dagbækur um rann-
sóknarstarfið, sukku með skipinu, auk
dýrra áhalda til rannsókna. Bergmáls-
dýptarmælir »Dana« kostaði t. d. 30 þús-
und krónur; 5000 krónur í peningum
voru í skipinu til ýmsra útgjalda, kola-
kaupa, launagreiðslu o. s. frv.; allt sökk ■
með því.
Hinn 4. júní lagði skipið út frá Kaup-
mannahöfn og stóð þá gamli Hansen á
stjórnpalli.
Dr. Táning til aðstoðar voru: Edv.
Aage Jensen, magister Helge Thomsen,
og ungur námsmaður.
»Dana« hélt fyrst út í Norðursjó til
að rannsaka og merkja rauðsprettur,
síðan var áætlað að fara til Færeyja og
íslands, og 10. september átti skipið að
koma aftur til Kaupmannahafnar.
Eftir áreksturinn 22. júní, þegar skips-
höfn »I)ana« var komin á þilfar þýzka
togarans, þá neitaði skipstjórinn að tlytja
hina skipreika menn á land, en hanðst
til að setja þá í vitaskipið við Hornsrev,
og ætlaði svo að halda leiðar sinnar,
en skipstjóri Hansen og Dr. Táning,
heimtuðu, að hann flytti þá til Esbjerg,
og á endanum var það gert.
Þar var lagt hald á togarann og sjó-
réttarpróf haldið, hinn 24. júní.
»Dana« var ríkisskip og því ekki vá-
tryggð, fremur en önnur skip danska
ríkisins.
Skipið með áhöldum var melið 750
þúsund króna virði.
Missir daghóka og vísindalegra skjala
er óhætanlegt tjón og hefði verið það,
þótt alll hefði verið vátryggt.
Nafn togarans, sem sökkti »Dana« er
»Pickhuhen« frá Cuxhaven.
Að loknu sjóprófi í Eshjerg hélt hann
heimleiðis, eftir að hafa sett tryggingu.
Sjóréttur, sem haldinn var í Hamborg,
komst að þeirri niðurstöðu, að árekst-
urinn væri stýrimanni á Pickhuhen að
kenna.
Mb. »Jón Þorlálcsson«.
Hinn 1. júlí sl. var nýr vélbátur sett-
ur á flot hér í Reykjavík; er nafn hans
»Jón Þorláksson« R.E. 60.
Daniel Þorsteinsson skipasmiður stóð
fyrir smíði; er báturinn í alla staði hinn
myndarlegasti, og frágangur hinn hezti,
hvar sem litið er.
Hann er 50 lestir að stærð og vélin
er »Yölund« 110—130 hö.
Eigandi er Guðm. Þ. Guðmundsson,
Ránargötu 8 a í Reykjavík; fór liann
norður á síldveiðar, um 10. júlí.