Ægir - 01.07.1935, Side 5
Æ G I R
14:5
Newfoundland.
Skýrsla stjórnarvalda í Newfoundlandi,
um atvinnuleysi í landinu, heflr nýlega
verið birt. Atvinnuleysið er tvennskonar,
segir þar. í fyrsta lagi er það í verstöðv-
um (Outports), milli vertíða, hjá fiski-
mönnum. í öðru lagi, er atvinnuskortur
hjá þeim stéttum, sem landvinnu stunda,
og ber mest á því í St. Johns.
Þegar litið er til hinna fyrnefndu, þá
er það fjöldi fólks, sem á heima í ver-
stöðvum og þorpum, utan liorgarínnar
St. Johns, og er vinna þeirra og vel-
megun, að mestu eða öllu leyti háð,
hvernig aflast og hve drjúg sú vinna
verður, sem leiðir af fiskveiðum.
Undanfarin ár hefir verið krepputíð
og ljöldi fiskimanna hafa misst báta sína
og veiðarfæri; hafa margir þeirra verið
i dýrtiðarvinnu við vegagerðir o. 11., og
eru nú að mestu orðnir fráhverfir flsk-
veiðum. Síðastliðið sumar veitti lands-
stjórnin 3000 mönnum, úr þessum llokki,
styrk lil þess að eignast það, sem þurfti
U1 úthalds háta og stunda fiskveiðar.
Ríkisstjórnin gerði ýmsar ákvarðanir
til að hæta úr hrýnustu þörf fiskimanna
árið 1934, og meðal framkvæmda var
eftirfarandi:
Verði á þvi, sem fiskimenn þurftu til
útgerðar, var haldið cius lágu og unnt
var, og reynt eftir megni, að koma iiski
þeirra á markað; hefir þetta, eftir því
sem haldið er, orðið lil þess, að ílski-
menu hafa borið meira úr hýtum en
ella hef'ði orðið, og auk þess hafa aðrir
notið góðs af því, i)æði við fiskverkun,
vinnu við sendingar o. II.
Stjórnin hefir látið reisa 7 kælihús og
dreift þeim eftir því, sem hezl hentar á
ströndinni; er geymd í þeim heita, sem
fiskimönnum er seld mjög ódýr.
Kælivélar hafa verið setlar í eimskipið
»Malakoff«. Er þar fryst beita og llylur
skipið hana til ýmsra verstöðva á strönd-
inni, sem eru of langt frá kælihúsunum,
lil þæginda fyrir fiskimennina.
Ymsum héruðum hefir stjórnin veitt
vaxtalaus lán, til þess að koma upp litl-
um kælihúsum til beitugeymslu, með
þeim skilyrðum, að helmingur lánanna
komi annarsstaðar frá.
Veturinn 1934—1935, voru yfir 60
skonnortur smíðaðar til fiskveiða og 11
endurbyggðar, og hefir landsstjórnin veitt
aðstoð sína til lántöku í framfarasjóði
nýlendanna. Nokkur minni lán liefir
hún veitt samvinnufélögum, sem veiða
og verka fisk og koma honum áleiðis á
markað.
Síldarsölunefnd vinnur að hetri verk-
un síldarinnar en var, og sér um sölu;
hefir árangur verið góður og síldarverðið
farið hækkandi.
Atvinnuleysi í ýmsum iðnaði er eink-
um í St. Johns og l)er þess að geta, að
iðnaði liefir hrakað þar hin síðustu ár.
Áður var siðurinn, að menn fluttu, að
heita mátti, allan verkaðan fisk af strönd-
inni þangað. í St. Jolms var hann pakk-
aður, látinn í skip til útflutnings, og
vann fjöldi manna að þcssu.
Sumir úlllytjendur í þorpum með fram
ströndinni, hafa liætt að senda fisk sinn
til St. Johns, með því þeir geta pakkað
fisk og ílull hann á skip, sem sækja
hann til þeirra, ódýrar en í horginni og
eftir því, sem þetla fer í vöxt, vex al-
vinnuleysið hjá þeim, sem þá atvinnu
stunduðu í St. Johns og útlit fyrir, að
það haldi áfram að aukast í framtíð-
inni.
Þó hafa menn góða von um, að áður
en langt líður, dragi úr vandræðum, er
áætlun stjórnarinnar kemst i framkvæmd.
Áriðl934 var ákveðið, að útvega 100 at-