Ægir - 01.07.1935, Blaðsíða 8
146
Æ G I R
þang breyttist í leðju, en þeirri spurn-
ingu vísa ég til mér fróðari manna, á
því sviði.
í vor sk}7rði Ólafur Guðbjartarson,
bóndi, frá því, að i þau 30 ár, sem hann
bjó í Hænuvík við Patreksfjörð og í
Keílavík við Látrabjarg, hafi orðið sú
breyting á hrognkelsaveiðum á þessum
stöðum, að á fyrstu 20 búskaparárum
hans, var gnægð hrognkelsa, hvervetna
íyrir landi, á vorin og fram eflir sumri,
en úr þessu heflr dregið síðustu árin,
og virðist sú tregða fara sívaxandi. —
Er þessi nytjafiskur að deyja út eins og
Geirfuglinn, eða hvað er hér að gerast?
Svo virðist einnig, að ýsa sé ekki eins ör
og hiin áður var, sé eftirfarandi athugað:
1931 var ýsuafli á árinu talinn 584 ton
1932 — — - — — 273 -
1933 — - - — — 303 —
1934 - — - — — 241 —
1935 — — í vertíöarlok 89 —
Petta nær að eins yfir 4]/s ár og skal
engar ályktanir af því gera, því frá árinn
1927, hefir ársaílinn verið mjög misniun-
andi. Sumir hafa haldið, að sorprennsli
út í Hafnarfjörð haíi fælt rauðsprettuna
burtu, því hennar hefur lítið orðið vart
um langan tíma, en nú í vor hefur lnin
veiðsl i ósnum við Óseyri, en veiði þó
verið stopnl, svo líklega verður að liverfa
frá þeirri hugmynd, að sorprenslið út í
fjörðinn fæli hana.
Skipstjóri Hinrik Hansen, er ekki sami
maður og Henrik A. Hansen, sem skrif-
að var um í októberhefti Ægis 1925, en
háðir eru íiúsettir í Hafnarfirði; er hinn
siðarnefndi nú 76 ára að aldri, var af-
imrðafiskimaður, en hefur aldrei verið
skipsljóri. Þessa er hér gelið, svo enginn
misskilningur verðí.
Revkjavik, 8. júlí 1935.
Svbj. Egilson.
»Lincolnshire«.
Enska togaranum, sem strandaði á
.Törundarboða 1. febrúar sl., var bjargað
af skerinu hinn 1. júlí og dreginn í fjöru
við Gufunes um kveldíð. Hafði þá ver-
ið unnið við björgun, síðan lyrri hluta
aprílmánaðar og vann varðskipið Ægir
að henni.
Miðvikudagsmorgun 17. júlí átti að
flytja skipið frá Gufunesi á dráttariiraut
í Reykjavik, en á leiðinni sökk það,
skammt fyrir vestan Skarfasker. Veður
var gott, vindur norðvestlægur og skjól
meðan farið var fram með Viðey, en er
út fyrir skcrin kom, lagði inn kviku úr
sundinu milli Viðeyjar og Engeyjar, en
við það gekk sjór yfir þilfar á skipinu
sjálfu og pramma, er liélt afturenda þess
uppi, svo við ekkert varráðið. Dýpi þar
sem skipið er nii, mun vera 15 metrar
um stórslreymisfjöru.
Ný lög í Færeyjum.
í þeim er bannað að skrá erlenda
sjómenn af skipum i Færeyjum án leyfis
lögreglunnar. Sérhver útlendingur, sem
kemur lil eyjanna, verður að tilkynna
lögreglunni komu sína, innan þess tima,
sem síðar mun ákveðinn, og skýra frá,
hvert sé erindi hans. Þá útlendinga, sem
félausir eru og gela ekki greitl sinn veg,
sendir lögreglan heim á þeirra sveit,
eða vísar þeim úr landi.
Framandi menn mega ekki dvelja
lengur en 3 mánuði, í einu, í eyjunum,
nema því að eins, að amtmaður geíi til
jiess sérstakt leyfi. Það má skipa hólcl-
eigendum, forstöðumönnum gistihúsa og
matsölustaða, að halda löggiltar bækur,
og' rita í þær nöfn allra gesta, jafnt
Dana og annara útlendinga.