Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1938, Blaðsíða 4

Ægir - 01.02.1938, Blaðsíða 4
42 Æ G I R sjó. Hvergi annarsstaðar á landinu voru menn eins mikið upp á sjóinn komnir með afkomu sina eins og hér. Upp úr þessuni jarðvegi óx og dafnaði Skipaábyrgðarfélagið. Hvergi annarsstað- ar á landinu datl mönnum þá í liug að tryggja skip sin og ekki fyrr en löngu seinna nema liér, og skal ég gefa nokkrar upplýsingar því viðvíkjandi. Árið 1890 var á Stokkseyri stofnaður Ábyrgðarsjóður opinna róðrarskipa í Ár- nessýslu. Mun það vera eina tryggingar- félag fyrir opin skip, sem þekktist þá á landinu, auk Skipaábyrgðarfélags Vcst- mannaeyja. Ábyrgðarfélag þilskipa við Faxaflóa var ekki stofnað fyrr en 1898, en ekki er mér kunnugt um, að þar liafi áður slarfað ábyrgðarfélag fyrir róðrarbáta. Það er ekki fvrr en vélbátaútgerðin hefst að menn vakna til meðvitundar um nauð- syn á stofnun ábyrgðarfélaga. Árið 1903 var svo stofnað Vélbátaábyrgðarfélag ísa- fjarðar, 1909 Bátaábyrgðarfélag Evfirð- inga, 1909 einnig Sjóábyrgðarfélagið Kóp- ur á Patreksfirði, 1908 Ábyrgðarsjóður fyrir vélbáta í Árnessýslu og 1914 Vélbáta- áljyrgðarfélag Akurnesiuga. Vestmannaeyingar höfðu þvi engar inn- lendar fyrirmyndir um stofnun ábyrgðar- félaga, þegar þeir hófust handa i þessu máli árið 18(52. Forgöngumaður Skipa- ábvrgðarfélagsins Bjarni E. Magnússon var stjórnandi þess fvrstu 10 árin, og mun hann hafa kynnst starfsemi trýggingarfé- laga utanlands. Þessi merki maður gerðisl hér sýslumaður árið 18(51 að nýloknu em- bættisprófi og var hér sýslumaður í 11 ár. Héðan fór hann til Húnavatnssýslu, eftir að hafa fengið veitingu fvrir þeirri sýslu. En þar naut hans skamma stund, þvi að hann varð bráðkvaddur 25. mai 1876 að- eins 45 ára að aldri. Ég skal ekki fjölyrða i þessari minni ræðu um þennan merka mann, því að lians mun verða minnst af öðrum hér i kvöld, eins og skvlt er, þvi að Bátaábyrgðarfélagið og allir Vest- mannaeyingar standa í svo stórri þakkar- skuld við ])etta stórmerka yfirvald, að af- mæli félagsins má ekki halda án þess að lians sé minnst. Skipaábyrgðarfélagið var sérstaklega heppið, ekki einungis með for- göngumanninn og fyrsta stjórnanda, held- ur og að því er snerti sjótjón. Það má segja, að það hafi ekki orðið fyrir neinu verulegu tjóni allan þann tíma, sem það iiafði aðeins opin skip í tryggingu, en það var fram til ársins 1908. Á þessum fyrstu 45 starfsárum félagsins voru aðeins 674 kr. greiddar í skaðabætur, en á sama tíma safnaðist i varasjóð nálega 4 495 kr., er þólti i þá daga stór upphæð. Um 1907 fóru breytingatimar í hönd um útgerð Vestmannaeyja að því leyti, að opnu skipin lögðust niður, en mótorskip komu í staðinn. Við þetta jókst trygging- arupphæðin gifurlega, og leiddi þetta vit- anlega til ýmsra brevtinga á félaginu. Þar á meðal að nafni þess var breytt í Báta- ábyrgðarfélag Vestmannaeyja. Hið breytta félagsheiti var samþykkt á fundi 24. nóv. 1907. Eru því rétt 30 ár siðan félagið breytti um nafn. Arið 1911 tók félagið upp þá nýbreytni að endurtrvggja, lijá Samáhýrgð Islands á fiskiskipum,öll þau skip, er það hefir liaft i tryggingu og hefir gert það jafnan siðan. Hvað rékstur félagsins á undanförnum árum snertir, vil ég leyfa mér að vísa til greinargerða, er við herra Ástþór Matt- híasson sömdum síðastliðinn vetur um starf félagsins, í tilefni af þvi að Alþingi hafði þá lil meðferðar lagafrumvarp um tryggingu vélbáta, er skert hefði til muna sjálfstæði þessa elzta skipatryggingarfé- lag's landsins, ef ekki hefði fengizt sú und- anþága, er i vetur var iögfest þvi viðvikj- andi og sem gildir fyrst um sinn í 3 ár. Nú eru liðin 76 ár siðan félagið var

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.