Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1938, Blaðsíða 14

Ægir - 01.02.1938, Blaðsíða 14
52 Æ G I R stjómin orðið að leigja alla varðbátana, en nú er svo komið, að lokið er við smíði á fyrsta varðbátnum af fjórum, og kom hann lil Revkjavíkur 24. febrúar. Uppdrátt að varðbátnum gerðu Páll Pálsson og Hafliði Hafliðason skipasmið- ir í Reykjavík. Smíði bátsins var boðið út innanlands og kom lægsta tilboð frá Gunnari Jónssyni og Herluf Ryel, skipa- smiðum á Akureyri, og var því tekið. „Óðinn“, en svo heitir báturinn, er 70 smál. að slærð og hefir 240 ha. „Delta“- dieseivél. Báturinn hefir eina 37 mm. fallbyssu og' verður útbúinn nauðsynleg- um björgunartækjum. Ivostnaðarverð bátsins varð rúmar 140 þús. kr. Aætlað er að báturinn kosti um 80 þús. kr. í rekstri á ári. „Óðinn“ er fvrsta löggæzluskipið, sem smiðað er liér á landi, og einnig mun hann vera stærsta skipið, sem smiðað liefir ver- ið hérlendis. Skýrsla um aflabrög’ð í Grímsey 1937. Árið, sem er að enda, hefir verið Gríms- evingum hagstætl að því leyti, að allt af varð fiskvart, árið um kring, ef á sjó gaf, en gæftir voru mjög stopular, t. d. gat ekki heitið að fært væri á sjó frá 16. ágúst og fram yfir miðjan októher. Aðal ver- tíðin stóð yfir, frá 20. júni lil 16. ágúst, eftir það var ekkert saltað til útflutnings, alla aðra tíma ársins var fiskurinn hertur til sölu innanlands, eins og endranær. Til fiskveiða gengu: 1 þilfarsbátur 4 lesta, 6 opnir vélbátar um 10 lestir alls og 5 árabátar. Saltað var blautt með dálki 46000 kg. stórþorskur (59200), 174000 smáfiskur (88000), svigatölur afli 1936. 23 sjómenn stunduðu veiðarnar. Handfæri var aðallega notað, að undantekniim 2 „trillum“ og þilfarsbátnum, sem notuðu linu að meslu leyti. Fiskvart varð í þorskanet í maí, en sú veiði var oflítið stunduð, mest var það svilafiskur, sem veiddist. Fjrir nokkrum árum var talsverð netaveiði hér, og munu menn liugsa sér að stunda hana meira framvegis. Þilfarsbáturinn fór á rekneta- veiðar i byrjun ágúst, en aflaði lílið, vegna storma o. fl„ en saltaðar voru þó hér til útflutnings á 2. lnmdrað tunnur af sild. Lúðu- og liákarlaveiði brást alveg, en brognkelsaafli var meiri en nokkurntíma áður í manna minnum. Lifur var keypt fvrir 15 aura líter. Það bamlaði mjög aflabrögðum að veik- indi voru hér meiri í sumar en 30 s. 1. ár. Inflúenza gekk hér í vor, og mun hún hafa átt mikinn þátt í þessari óvanalegu ó- hreysti í ungum og gömlum. Læknir var fenginn af Akureyri, og mun lionum ekki hafa litist vel á heilsufarið yfirleitt. Sex manns voru fluttir á sjúkrahús á Akurcvri og Húsavík. Þrír fullorðnir karlmenn dóu á árinu og ein stúlka 15 ára. Graftarígerð- ir, blóðeitrun og bólguveiki ýmiskonar var mjög áberandi. Eggjataka og fuglaveiði var vel í með- alJagi, og sama má segja um grassprettu, en nýting beyja afleit vegna sífeldra rign- inga og súlda. Að síðustu grófu margir bráðabirgða súrbeysgryfjur og lítur út fvrir, að súrheyið sé i bezta lagi, munu bændur ætla að notfæra sér þessa sjálf- sögðu votviðraheyverkun meira framvegis. í sumar var reistur liér viti úr stein- stevpu, var það hið mesta nauðsynjaverk, og eru Grímseyingar þakklátir fyrir þær framkvæmdir, en á honum verður þó ekki kveikt fyrr en á næsta sumri. Sandvik, 31. dcs. 1937. Steinólfur E. Geirdal,

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.