Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1938, Blaðsíða 15

Ægir - 01.02.1938, Blaðsíða 15
Æ G I R 53 Fiskiþingið var vse!t 15. febr. og slendur það yfir enn þá. Frá störfum þingsins verður sagt i næsla ))laði. Fréttir úr verstöðvununi. Grímsey: Mánudagsmorguninn 7. febr. reru 7 bátar úr Grímsey, og var þá bjart veður. En snögg- lega hvessti af vestri og var komið stórviðri kl. 10VÍ> f. h. Allir bátarnir komust þó klakklaust aS landi, nema einn, er fekk hinn versta barn- ing. Hann komst þó undir eyna, en hrakti út meS henni og barst aS siSustu inn i litinn vog undir bjarginu og mölbrotnaSi þar. ÞaS vildi mönnunum til lifs, aS lágsjávaS var, og gátu þeir því skriSiS upp klungururS undir berg- inu. A bátnum voru tveir menn, og voru þeir mjög þrekaðir, er heim kom og annar meiddur á fæti. Isafjörður: BeilingarkapiJmót fór fram i Alþýðuhúsinu á Isafirði á vegum félagsins Bylgjunnar 28. jan. Keppendur voru 28. Beitti hver 2 lóðir eða 200 öngla og lagði linuna, og giltn vissar reglur um það, hversu verkiS skyldi af hendi leyst. Urslit urðu þau, að fyrstu verðlaun hlaut Karl Sigurðsson, 10 mín. 20 sek., önnur verðlaun hlaut Ólafur GuSjónsson. 10 min. 55 sek. og þriðju verðlaun hlaut Kristján Pálsson, 11 mín. 37 sek. Allir verðlaunahafarnir eru úr Hnifs- dal. Verðlaunin voru: Fyrstu fánastöng og 40 kr., önnur 40 kr. og þriðju 20 kr. Þetta kapp- mót er hið fimmta i röðinni. Hið fyrsta var háð 1922. Styzti tími áður 12 mín. 17 sek. Seinast i febr. voru allir stærri vélbátarnir frá Isafirði farnir á veiðar. Var afli dágóður úti fyrir firðinum og undir Jökli, en þangað sækja stærstu bátarnir. Rækjuveiði var mikil i febr., einkum seinni bluta hans, cn veiðin var sótt til Arnarfjarðar. Ólafsvík: Þar hefir verið dágóður afli síðan á áramót- um og stundum ágætur. Einnig hefir aflazt vel á Sandi, þegar gefið hefir á sjó. Akranes: A Akranesi hefir verið stofnað nýtt útgerð- ttrfélag, er hejtjr Viðir b.f., og hefir það fest kaup á togaranum ,,Sindra“. Af Akranesi ganga alls á vertíðinni 24 vélbátar og auk þess „Sindri“ og linuveiðarinn „Ólafur Bjarnason“. Afli hefir verið dágóður á Akranesi og hafa aflahæstu bátarnir fiskað um og yfir 20 skpd., þegar bezt hefir látið. Togarinn „Sindri' hefir stundað ufsaveiðar, og er stærsti ufsinn flak- aður og saltaður, en smærri ufsinn látinn i verksmiðjuna og unninn i fiskimjöl. Iteykjavík: P'lestir togararnir þar hafa legið bundnir við hafnargarðinn, síðan þeir hættu ísfisks- veiðum. Stendur nú yfir verkfall, vegna kaup- gjaldstreitu, seni er á milli útgerðarmanna og togaraháseta, og verður ekki enn séð fyrir, hversu lengi það muni vara. Fjórir togarar hafa verið á ufsaveiðum og aflað vel. Þrir togarar hafa undanfarið stundað saltfiskveiðar við Norður-Noreg, og er einn þeirra úr Rvik, „Reykjaborg“, en tveir úr Hafnarfirði. Fjórir vélbátar úr Rvik stunda nit þorsk- veiðar og auk þess linuveiðagufuskipið „Sig- riður“. Hafnarfjörður: Bæjarútgerðin í Hafnarfirði hefir nýlega fengið efni i 50 fiskhjalla, og ætlar hún að herða i þeim ufsa á komandi vertið. Togarar bæjarútgerðarinnar eru nú á ufsaveiðum. Suðurnes: Frá Grindavik ganga i vetur 30 bátar og er þar af 5 þilbátar, en hitt eru flest opnir vél- bátar frá 3—6 smál. Afli á Suðurnesjum hefir verið í meðallagi. það sem af er vertið. Vikuna 13.—20. febr. nrðn Suöurnesjamenn fijrir miklum ágancji erlendra togara, og misstu þcir á fjórum dögum 242 bjóð af linu á 01/— ........... U762 kr. 62 uppistöður á 31/— .............. 1922 — 4 Ijósbaujur á 15S/— .............. 632 — Alls 17316 — Xú er tulinn vera jjar meðalafli, og áætla fteir, að j>á fiskist hálft skpd. að meðaltali á bjóð. Fá j)vi allir séð, að j>að er ekkert smá- rcvðis tap, sem Suðurnesjamenn hafa orðið fgrir, auk veiðarfæraíjónsins. Þecgar fregnir jjessar bárust Fiskiþinginu, sem ná stendur yfir, var samstiindis borin upp og samþykkt svohljóðandi tillaga:

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.