Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1938, Blaðsíða 9

Ægir - 01.02.1938, Blaðsíða 9
Æ G I R 47 smál. Þorskveiðarnar við Lofóten gení,fu vel í meðallagi. Þátttakan í veiðunum var minni en árið áður. Yertíðaraflinn i Lo- fóten varð alls 82 þús. smál. en 53 þús. smál. árið 1936. A tímabilinu 1929— 1937 liéfir árleg meðalveiði verið 87 þús. smál. Fyrir fiskinn var goldið 10—13Vo evrir pr. kg., lifur 18—32 aurar pr. líter og fvrir lirogn 15—30 aura. Heildarverðmæti Lo- fótenaflans nam 13,6 millj. kr. en 9 millj. kr. árið áður. Hlutir sjómanna urðu að meðaltali yfir vertíðina 136 kr. brutlo, en 270 kr. 1936. Þorskveiðarnar við Finn- mörk beppnuðust vel og varð Jieildarafl- inn mjög svipaður og fyrra ár, eða um 14 þús. smál. Fiskur var yfirleitt smár og lifrarlítill, bæði við Lófóten og Finn- mörk. Þorskveiðar Norðmanna við Island gengu mjög illa. Alls voru farnar 17 veiði- ferðir og veitt fyrir samtals 235 þús. kr., en 929 þús. siðastl. ár. Norður til Sval- barðs og Bjarnarevjar voru farnar 1 18 veiðiferðir og aflað alls 2500 smál. af þorski en 1000 smálestir fvrra ár. Eng- lendingar og Færevingar öfluðu vel á þessum slóðum, Jiótt Norðmenn fiskuðu þar sama og ekkert á lóðir. Sunnmæring- ar stunduðu flvðruveiði við Færeyjar, eins og undanfarin ár, og gafst það vel. Fjórir norskir leiðangrar stunduðu veiðar við 5restur-Grænland og fiskuðu alls fyrir 290 jiús. kr. A þessari útgerð varð mikið tap, og sérstaklega mun Thorlands-leiðangur- inn, sem sagt var frá i 7. tbl. Ægis 1937, bafa orðið afar liart úti. Talið er að á næstu árum verði ekki liægt að stunda ábatasama flyðruveiði í Davíssundi eða á miðunum þar i nánd, vegna þess liversu gengið hefir á flyðrustofninn á þessum slóðum undanfarandi ár. Allir norsku leið- angrarnir veiddu alls 14 smál. af flyðru, og má greinilega marka á þvi, liversu hún er upp urin á þessum miðum. Átta togarar stunduðu veiðar á árinu og veiddu alls fyrir 2 430 þús. kr. Hlutir háseta urðu frá 3—5 þús. kr. yfir árið. En árshlulir liáseta á línuveiðagufuskipum og síldveiðigiifskipum eru ekki taldir hafa farið fram úr 2000 kr. Ufsaveiðin gekk svipað og síðastl. ár, og fiskuðust alls 26 þús. smál. og var hert af því 23 580 smál. Sala á hertum ufsa gekk greiðlega. Sjómönnum var borgað 8 aura fyrir kg. af ufsanum og nam heild- arverðmæti lians 2 080 þús. kr. Makrílveiðin gekk lakara en fyrra ár og varð heildaraflinn 2 177 smál. minni, en eigi að síður nam heildarverðmæti ma- krilsins 1 850 þús. kr. Rækjuveiðarnar gengu miklu ver en ár- ið áður og varð heildaraflinn 2100 smál., en 2600 smál. árið 1936. Heildarverðmæli rækjanna á árinu nam 1600 þús. kr. Flvðrunetaveiðin. Frá áramótum og fram í aprílmánuð var þessi veiði stund- uð mjög mikið og i sumum héruðum al- veg einliliða. Talið er, að á þessu tímabili liafi fiskast um 2 500 smál. af flyðru. Menn gerðu sér góðar vonir um að liaust- veiðin yrði mikil, en hún brást alveg. Úl af Andenes var dágóð veiði, en bvergi annarsstaðar, og er það athvglisvert, að einmitt á þeim slóðum veiddist ekkert af flyðru haustið áður. Yeiðin við Andenes nam um 40% af haustaflanum, en hann var nálægt 700 smál. Þegar lilið er á það, að um 600 bátar mcð 3000 manna áhöfn tóku þátl i þessari veiði, þá dylst manni ekki, að slík úlgerð liafi verið rekin með miklum halla. Það virðist svo, að liin ó- venju mikla flyðruveiði síðari lilula árs- ins li)36 og fyrri hluta árs 1937 bafi haft sorglega mikil neikvæð áhrif á flyðru- stofninn, og er það álit margra, að það muni taka langan tíma að hann komist á það stig, sem hann var áður en flyðru- netaveiðin. bófst. Ilin síðari ár hefir

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.