Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.1938, Qupperneq 12

Ægir - 01.02.1938, Qupperneq 12
50 Æ G I R BjÖrgunarskútan »Sæbjörg« Björgunarskútan »Sæbj örg«. Sunnudaginn 20. febr. safnaðist niikill fjöldi manns saman á liafnargarðinum, til þess að taka á móti björgunarskút- unni „Sæbjörgu“. Skipin, sem lágu í liöfn- inni, voru skreytt liátíðafánum og þegar „Sæbjörg“ sigldi inn höfnina, var blásið í eimpípur allra skipanna, lil þess að bjóða björgunarskútuna velkomna. Aður en „Sæbjörg“ kom i innri iiöfnina, fóru stjórn Slysavarnafélagsins, kvennadeild- arinnar, hafnarstjóri og ýmsir aðrir gest- ir um borð í liana. Um ld. 2 lagðist björg- unarskútan við Grófarbryggjuna, og voru þá mættir þar ræðismenn erlendra ríkia, vígslubiskup, fuJJtrúar frá ríkis- og bæj- arstjórn og ennfremur konur úr Kvenna- deild Slysavarnafélagsins. Forseti Slysavarnafélags Islands, Þor- steinn Þorsteinsson skipstjóri, liélt stutta ræðu, eftir að skipið var lagst við festar. Sagði hann sögu björgunarskútumálsins í stórum dráttum. Skýrði hann frá tilorðn- ingu björgunarskútusjóðsins og liversu liann liefði aukizt fyrir velvilja og fórn- fýsi fjölda manna. Minntist forsetinn sér- staklega á þann mikla skerf, sem konurn- ar hafa lagt til björgunarskútumálsins. Þvínæst talaði formaður Kvennadeild- ■ ar Slysavarnafélagsins í Reykjavík, frú Guðrún Jónasson, og tilkynnti liún i lok ræou sinnar, að kvennadeildin liefði á- kveðið að gefa 25 þús. kr. til starfrækslu björgunarskútunnar og væi’i það fé hand- bært nú þegar. Fvrir Iiönd ríkisstjórnarinnar héll ræðu Yigfús Einarsson, fulltrúi, en að því loknu sté vígslubiskup sr. Bjarni Jónsson um borð í „Sæbjörgu“. Hélt liann vígsluræðu, og var athöfn sú öll liin liá- tiðlegasta. Síðar um daginn bauð stjórn Slvsa- varnafélagsins 150 manns til tedrvkkju að Hótel Borg. Björgunarskútan „Sæbjörg" er smíð- uð í Frederikssund og er rúmlega 60 smál. að stærð. Teikningar og skipslýsingu gerði íslenzkur maður, Þorsteinn Dan- íeJsson, skipasmiður. Skipið er smíðað úr eik og bevki og er talið mjög sterkbyggt.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.