Ægir - 01.06.1938, Side 4
130
Æ G I R
tókn ofan, og hið mikla mannhaf stóð
þannig þögult og hreyfingarlaust i eina
mínútu. Mörgum, er þarna voru viðstadd-
ir, mun verða þessi stutta og látlausa at-
höfn minnisstæð, enda var talið, að með
henni liefðu hátíðahöldin náð liámarki
sínu. Þögnin var rofin með því að aftur
var gefið merki og söng þá söngsveit sjó-
manna „Þrútið var loft.“
Nokkru eftir að „Skúli fógeti“ fórst 10.
apríl 1933 rak lík, sem var óþekkjanlegt,
og var það jarðað í Fossvogskirkjugarði
af síra Árna Sigurðssyni 27. mai sama ár.
Á leiðið var settur trékross, sem á var letr-
að „Óþekkti sjómaðurinn 1933“. For-
stöðunefnd Sjómannadagsins heiðraði
minningu þessa óþekkta sjómanns, með
því að láta unga stúlku leggja blómsveig
á leiðið.
Ólafur Thors alþingismaður steig síðan
í ræðustól og hélt stutta ræðu um leið og
liann afhenti forstöðumönnum Sjómanna-
dagsins forkunnar fagran verðlaunagrip
frá Félagi ísl. botnvörpuskipaeigenda.
Grip þennan er ákveðið að nota sem verð-
laun fyrir hjörgunarsund, en hann var
sendur hingað til lands árið 1930 sem gjöf
frá félagi útgerðarmanna í Hull til Félags
ísl. hotnvörpuskipaeigenda. Þegar gripur-
inn hafði verið afhentur og Friðrik Ólafs-
son skólastjóri þakkað fyrir liönd sjó-
manna, flutti Skúli Guðmundsson atvinnu-
málaráðherra ræðu, þar sem hann lýsti
starfi sjómanna fyrr og nú og henti á gildi
þess fyrir þjóðfélagið. Auk þess las hann
upp kvæðið Útsær, eftir Einar Benedikts-
son, og dró af því samlíkingar úr lífi sjó-
mannanna. Þegar hann hafði lokið ræðu
sinni, lék Lúðrasveit Reykjavíkur „Ó, guð
vors lands.“
Hátíðahöldunum við Leifsstyttuna var
nú lokið og drevfðist mannfjöldinn óðar,