Ægir - 01.06.1938, Blaðsíða 5
Æ G I R
131
en liann var meiri en menn höfðu séð í
Reykjavík um langt skeið, enda var gizk-
að á að þarna liefðu verið saman komnir
8—10 þúsund manns.
Meðan fólksstraumurinn lá nú niður
Skólavörðustíginn og niður að liöfn, því að
þar átti að liefjast stakkasund. Vegalengd-
in, sem synda átti var 100 metrar og var
hún merkt með duflum. Alls voru skráðir
9 þátttakendur, en einn fatlaðist frá. Fyrst-
ur að marki í stakkasundinu varð Jóliann
Guðmundsson af Hilini (2 mín 59,7 sek.),
annar Vigfús Sigurjónsson af Garðari
(3 mín 1,4 sek.) og þriðji Loftur Júlíus-
son af Baldri (3 min. 4,5 sek.). Stakka-
sundsbikar Sjómannafélags Reykjavíkur
var verðlaunagripur í þessari íþróttagrein,
en auk þess fengu þrír fyrstu mennirnir
verðlaunapeninga úr silfri.
Að stakkasundinu loknu Iiófst kappróð-
ur og tóku 11 skip þátt í honum. Róið var
á björgunarhátum og voru 6 ræðarar á
hverjum hát auk stýrimanns. Vegalengd-
iu, sem róin var, var um 750 metrar. Sjó-
nienn af togaranum Hilmi sigruðu í kapp-
róðrinum á 3 mín 58.3 sek. Annar varð
Egill Skallagrímsson á 4 mín 0.8 sek og
þriðji varð Garðar á 4 mín. 1.1 sek. Verð-
launagripur í þessari íþróttagrein var
»,Fiskimaður“, rismynd eftir Ásmund
Sveinsson, sem Morgunblaðið liafði látið
gera fyrir nokkrum árum og gefið til slíkr-
ar keppni.
Að lokum var keppt í knattspjTnu og
reipdrætti á Iþróttavellinum. Sjómenn
kepptu \dð knattspyrnufélagið Hauka úr
Hafnarfirði, og unnu sjómennirnir með
2 mörkum gegn 1.
Sjómenn úr Reykjavík þreyttu reiptog
við Hafnfirðinga. Var keppt í tveimur 8
uianna sveitum og unnu Reykvikingar.
Keppt var um nýjan verðlaunagrip, silfur-
bikar, sem veiðarfæraverzlanirnar hér í
hænum gáfu.
Um kvöldið var hóf að Hótel Borg og
var þar svo fjölmennt sem liúsrúm frek-
ast leyfði. Henry Hálfdánarson, formað-
ur framkvæmdarstjórnar Sjómannadags-
ins, bauð gesti velkomna, en Kristján Berg-
son, forseti Fiskifélags Isl., stýrði liófinu.
Margar ræður voru haldnar þarna, sungið
og spilað á fiðlu og var því öllu útvarpað.
Adolf Guðmundsson mælti nokkur orð á
frönsku, þar sem hann ávarpaði gesti frá
helgiska skólaskipinu Mercator, en foringi
skipsins þakkaði fyrir góðar móttökur. Sig-
urjón Einarsson skipstj. úr Ilafnarfirði
talaði f. h. skipstjóra, Júlíus Ólafsson fvrir
vélsljóra, Óskar Jónsson fjTÍr Sjómanna-
félög Reykjavíkur og Hafnarf jarðar, Grim-
ur Þorkelsson fyrir stýrimenn, Halldór
Jónsson fyrir loftskeytamenn og Janus
Halldórsson fyrir matsveina og veitinga-
þjóna. Þegar lokið var ræðum frá starfs-
greinum stéttarinnar, flutti Ásgeir Sig-
urðsson skipstjóri ræðu fyrir minni Is-
lands, Friðrik Halldórsson loftskeytamað-
ur fyrir minni kvenna, en frú Rannveig
Vigfúsdóttir þakkaði fyrir hönd kvenn-
anna. Á milli þess sem ræður voru fluttar,
söng karlakór sjómanna undir stjórn Guð-
mundar Egilssonar loftskeylamanns. Guð-
mundur söng einnig einsöng og lék á fiðlu.
Að lokum var Erlingur Ivlemensson sæmd-
ur heiðurspeningi Sjómannadagsins fyrir
að hafa tekið þátt í öllum íþróttum, er
þreyttar voru á Sjómannadaginn.
Framkvæmdaráð Sjómannadagsins gaf
út stórt og myndarlegt blað í tilefni dags-
ins.
Það er allra mál, að hátíðahöld sjó-
mannanna hafi verið stórfengleg og farið
fram með ágætum. Þeir, sem stóðu að
undirbúningi þessara hátíðahalda, eiga
miklar þakkir skilið fyrir allar sínar fram-
kvæmdir, fyrir hve myndarlega hinn fyrsti
Sjómannadagur var úr garði ger.
Það kom greinilega í ljós á Sjómanna-