Ægir - 01.06.1938, Blaðsíða 6
132
Æ G I R
daginn, hve lilýleikinn og vinaþelið til sjó-
mannanna á sér djúpar rætur í hug land-
fólksins, hvar sem það stendur í stétt eða
flokki.
Fiskkaup Bretlands 1937.
Fiskveiðar eru mjög mikið stundaðar
frá Stóra-Bretlandi, en þrátt fyrir það er
flutt þangað inn ýmiskonar fiskmeti fyrir
geypilegar fjárhæðir árlega. Fiskneyzlan i
Englandi er talin vera 25 kg. á mann á ári
hverju og ef gert er ráð fyrir, að liún sé
svipuð annarsstaðar i konungsríkinu, þá
má geta sér til livílíkt gífurlegt fiskmagn
þarf árlega að berast þar á land, til þess
að unnt sé að fullnægja fiskþörfinni.
Talið er að síðastliðið ár liafi fiskur sá,
er hrezk skip lönduðu í Stóra-Bretlandi,
numið alls 262.675 þús. krónum. Innflutt-
ur fiskur (ferskur, frystur, ísaður og nið-
ursoðinn) nam að þyngdarmagni til
184.673 smál. og er verðmæti lians talið
nema 228.470 þús. krónum. Af þeim fiski,
sem fluttur var inn var örlítill hluti seld-
ur aftur til annara landa, eða fjrrir 12.850
þús. kr. Fiskinnflutningurinn jókst á ár-
inu um 2%, miðað við fyrra ár, en að
verðmæti til varð aukningin 10%.
Sú fisktegundin, sem langmest er flutt
inn af lil Stóra-Bretlands er niðursoðinn
lax. Nam innflutningsmagn hans síðast-
liðið ár 60 þús. smál. og nam það að verð-
mæti til um 100 milljónir kr. Niðursoð-
inn lax kaupir Stóra-Bretland svo að segja
eingöngu frá fjórum löndum og skiptist
innflutningurinn þannig á milli þeirra eft-
ir magni og verðmæti:
Japan ........... 22.793 smál. 35.262 þús. kr.
Rússland ........ 14.690 — 23.643 — —
Bandaríkin ...... 12.752 — 23.451 — —
Kanada............ 8.761 — 17.301 — —
Eins og þessi skýrsla her með sér, er
langsamlega mest flutt inn af niðursoðn-
um laxi frá Japan, eða nálega % af heild-
arinnflutningnum. Japan flytur að tiltölu
langsamlega mest inn af fiskmeti til Stóra-
Bretlands þegar miðað er við verðmæti, og
nemur fisksala þeirra þangað næstum því
% af verðmæti heildarinnflutningsins.
Heildarinnflutningur Japana til Stóra-
Bretlands skiptist, sem liér segir, eftir fisk-
tegundum, magni og verðmæti:
Lax og silungur
(frystur og ís-
aður) ........ 298 smál. 294 þús. kr.
Lax (niðursoðinn) 22.723 -— 35.262 — —-
Smásíld .......... 1.196 — 799 — —
Krabbi ........... 1.961 — 7.243 — —
Aðrar tegundir .. 54 — 95 — —
Japanir liafa aukið mjög innflutning
sinn, miðað við árið 1936, á þeim tegund-
um, sem hér eru taldar, nema krabba.
Alls hafa Japanir aukið innflutningsverð-
mæti sitt á fiski til Stóra-Bretlands um
10 milljónir kr. á þessu eina ári. Talið er
að Japanir veiði nálægt því ýj hluta af því
fiskmagni, sem herst árlega á land í öll-
um heiminum. Framleiðslukostnaður
þeirra er lægri, en allra annara fiskveiða-
þjóða og þess vegna er þeim auðveldara, en
flestum öðrum þjóðum, að nema stóra
markaði á hinum fjarlægustu stöðum,
eins og skýrt kemur í ljós af því, sem sagt
hefir verið hér að framan um viðskipti
þeirra við Stóra-Bretland. Hinu má heldur
elcki gleyma, að Japanir standa mjög
framarlega í niðursuðu matvæla, og það
á vitanlega sinn þátt í því, að niðursuðu-
vörur þeirra eiga greiða leið á markað.
Rússland er annar hæsti innflytjandinn
á niðursoðnum laxi til Stóra-Bretlaiids og
liefir aukið þann innflutning sinn á árinu
um 1.329 þús. kr. Auk þess flytja þeir inn
krahba fyrir 5.624 þús. kr. og jókst sá inn-
flutningur árið 1937 um 785 þús. kr., mið-
að við fyrra ár.
Stóra-Bretland selur aftur á móti mjög
lítið af fiski til Rússlands. Einkum er seld