Ægir - 01.06.1938, Side 7
Æ G I R
133
þangað sild og nam sá útflutningur árið
1936 6.460 smál. og varð andvirði þess
1.432 þús. kr. Árið 1937 minnkaði þessi
útflutningur mjög mikið og varð aðeins
735 smál. og nam verðmæti þess 146 þús.
kr. Brezkir sildarútgerðarmenn eru mjög
óánægðir yfir því, að ekki skuli takast að
auka síldarsöluna til Rússlands og er síld-
arútvegsnefndinni ensku og fiskimála-
ráðuneytinu mjög legið á hálsi fyrir at-
hafnarlejrsi i þessu efni. Síldarútgerðar-
mennirnir i Bretlandi vilja láta setja höml-
ur á innflutning á niðursoðnum laxi frá
Rússlandi, nema að liægt verði að auka
þangað mjög mikið sölu á saltaðri síld.
Stóra-Bretland kaupir mjög mikið af
allskonar fiski frá Noregi (ferskan, fryst-
an, verkaðan og niðursoðinn) og nam sá
innflutningur að verðmæti til 37.795 þús.
kr., síðastliðið ár. Af þessari upphæð voru
5.825 þús. kr. fyrir brisling og 4.873 þús.
kr. fyrir sild.
Alls var flutt inn til Stóra-Bretlands,
siðastl. ár, af niðursoðnu fiskmeti 80.843
smál. og nam verðmæti þess 152.758 þús.
kr. Það er þvi ekki að undra, þótt Bret-
um finnist innflutningur þeirra á niður-
soðnu fiskmeti mikill, enda hafa þeir orð
á því. Þegar þeir gefa því gaum, hvað
tækni þeirra er mikil í því að leggja niður
ávexti og grænmeti, þá finnst þeim það
sæta undrun, að ekki skuli vera gert meira
að því að sjóða niður fiskmeti í þeirra
eigin landi, en raun er á.
Stóra-Bretland kaupir auk þess, sem hér
hefir verið nefnt, mjög mikið af frvstum
og ísuðum sjávarfiski og skulu liér aðeins
ncfndar helztu fisktegundirnar, magn
þeirra og verðmæti, siðastliðið ár:
Síld ............... 17.890 smál. 4.980 þús. kr.
Koli ............... 16.407 — 15.107 — —
Þorskur ............ 10.838 — 3.312 — —
Ýsa ................. 7.525 — 3.687 — —
ASrar fisktegundir 19.346 — 18.340 — —
Islendingar flytja mikið af fiski til
Stóra-Bretlands, ef miðað er við heildar-
útflutningsmagn þeirra af fiski og nam
heildarúlflutningur þeirra þangað síðast-
liðið ár 8.516 þús. kr., og voru þar af
4.605 þús. kr. fjTÍr ísaðan og frystan fisk,
en 3.911 þús. kr. fyrir verkaðan og óverk-
aðan saltfisk. Saltfiskimrflutingurinn til
Stóra-Bretlands var talsvert meiri en und-
anfarin ár, sem stafaði af þvi, að þangað
voru seldar 3932 smál. af Spánarfiski, sem
ætla má að hafi farið til Spánar. En þrátt
fyrir það, að fiskútflutningur Islands til
Stóra-Bretlands liafi verið óvenjulega mik-
ill þetta ár, þá nemur þó verðmæti hans
tæplega 14 af því verðmæti, sem Norð-
menn fengu fyrir úlflultan fisk til Stóra-
Bretlands þetta sama ár.
Afkoma og rekstur
Eimskipafélag’s íslands 1937.
Hagur Eimskipafélags íslands hatnaði
mjög verulega síðastl. ár, sem glöggt má
sjá af skýrslu þeirri um hag og fram-
kvæmdir félagsins árið 1937, sem lögð var
fram á aðalfundi Eimskipafélagsins, er
settur var laugardaginn 18. júní. Afkoma
félagsins var rúml. 435 þús. kr. betri en
fyrra ár. Eftir að húið var að afskrifa skip
og fasteignir um 592 þús. kr., þá var 405
þús. kr. tekjuafgangur.
Alls hafa tekjur félagsins liækkað um
rúmar 760 þús. kr. og eru þar af saman-
lagðar tekjur skipanna tæpar 739 þús. kr.
Tekjuaukningin stafar aðallega af aukn-
um vöruflutningum með skipum félags-
ins, en vörumagn það, er skipin fluttu var
11.309 smál. meira en 1936, eða alls 102.711
smál.
Farmgjaldstaxtar félagsins hafa að
mestu leyti haldizt óbreyttir, þrátt fyrir