Ægir - 01.06.1938, Síða 8
134
Æ G I R
það, að þeir liafa liækkað víðast hvar ann-
arstaðar í lieiminum og sumsstaðar stór-
lega. Fargjöld hafa haldizt alveg óbreytt.
Farþegaflutningar voru með mesta móti
á árinu og fluttu skip félagsins alls 3078
farþega á milli landa, og er það 379 fleira
en næsta ár á undan.
Útgjöld félagsins samanlögð, að frá-
dregnum fyrningarupphæðum, hafa hækk-
að um rúmar 325 þús. kr. Þessi útgjalda-
hækkun stafar aðallega af auknum flutn-
ingum á árinu, og ennfremur af því, að
ýmsar nauðsynjar til skipa hafa hækkað
talsvert í verði, einkum kol.
Millilandaferðir skipa félagsins voru 2
fleiri en fyrra ár, en viðkomur innanlands
urðu alls 977 og er það 311 fleiri en gert
var ráð fyrir i áætlun félagsins fyrir árið
1937.
Siglingum skipanna er á þessu ári
(1938) hagað líkt og verið hefir, að því
undanskildu að yfir sumartímann er „Brú-
arfoss“ látinn koma við í Grimsby á út-
leið, en ekki Leith eins og áður. Þessi
Iireyling hefir verið gerð með tilliti til
flutninga á frystum fiski yfir sumarmán-
uðina en liann fer, eins og kunnugt er,
einkum til Grimsby. „Goðafoss“ er aftur
á móti látinn koma við í Leith á útleið yfir
þennan tíma, í stað „Brúarfoss“.
Eftirlaunasjóður félagsins jókst á árinu
um tæpar 57 þús. kr. og nam um síðustu
áramót rúmum 640 þús. kr. Útborgað var
úr sjóðnum á árinu rúmar 11 þús. kr„
sem eru eftirlaun og biðlaun til nokkurra
af slarfsmönnum félagsins. Stjórn félags-
ins leggur fram, á aðalfundi þeim, sem
nú stendur yfir, tillögur um lillag til sjóðs-
ins og verði þær samþykktar, þá liækkar
sjóðurinn á þessu ári um 60 þús. kr. auk
vaxta.
Eignir félagsins námu við síðustu ára-
mót, samkvæmt efnahagsreikningi, tæp-
um 3.796 þús. kr. en skuldir að meðtöldu
hlutafé um 2.927 þús. kr. Eignir félagsins
umfram skuldir nema því tæpum 869 þús.
kr. og hefir því eignaaukningin á árinu
numið rúmum 286 þús. kr. Eignir hafa
hækkað um 153 þús. kr. en skuldir lækk-
að um 133 þús. kr.
Samþykkt hefir verið að félagið greiði
í ár 4% arð af lilutafénu.
Árið 1936 hyrjaði stjórn félagsins að
starfa að undirbúningi viðvíkjandi smiði
á farþega og flutningaskipi handa félag-
inu, sem væri stærra og hraðskreiðara en
þau, sem nú eru i eign félagsins. Félags-
stjórnin hafði ákveðið að láta smíða mó-
torskip en ekki gufuskip. Gert var ráð
fyrir að þetta fyrirhugaða skip færi 16
mílur á vöku og tæki þá ferð milli Reykja-
víkur og Kaupmannahafnar, með viðkomu
í Leitli, aðeins 3% sólarhring. En til þess
að ná slíkum hraða, er talið að skipið þurfi
að vera 320 fet á lengd og 45 feta breitt.
Lestarrúm þess yrði 86 þús. teningsfet og
gæti slíkt skip tekið 228 farþega. Félags-
stjórnin sá strax að í þessi skipasmiði yrði
ekki ráðist, nema að styrkur rikissjóðs
til félagsins yrði aukinn. Yar því leitað til
ríkisstjórnar og Alþingis um að félagið
fengi i 10 ár árlegan stjTk úr ríkissjóði til
reksturs liins fyrirhugaða skips, en því var
synjað. Það sem aðallega hefir tafið fyrir
því að félagið hefir ekki látið smíða nýtt
skip, er sú gífurlega hækkun, sem orðið
hcfir á smíði skipa. En þrátt fyrir það að
mál þetta hefir strandað í bili, þá mun
stjórnin halda áfram nauðsynlegum undir-
búningi þess, svo að hægt verði að liefja
framkvæmdir svo fljótt sem kostur er.