Ægir - 01.06.1938, Side 9
Æ G I R
135
Tilraunir með fiskveiðar
í Persaflóanum.
Haustið 1936 var danski fiskifræðingur-
inn dr. Blegvad ráðinn af persnesku stjórn-
inni til þess að athuga möguleikana fyrir
því að reka fiskveiðar í Persaflóanum. Dr.
Blegvad hafði árið 1928 verið ráðinn til
Lithauen í sömu erindum og þóttu rann-
sóknir þær, er liann framkvæmdi þar,
bera mjög góðan árangur. Nokkru fyrir
áramótin 1937 fór dr. Blegvad austur í
Persíu til þess að kynna sér staðhælti þar
og undirbúa rannsóknirnar. Að tilhlutun
hans keypti persneska stjórnin kútterinn
„Drot“ frá Esbjerg, og var hann útbúinn
ýmiskonar veiðarfærum og öllum nauð-
synlegum áhöldum til rannsóknanna. Á-
höfnin á „Drot“ var ráðin í Danmörku
og voru það allt vanir sjómenn frá Es-
bjerg. Rannsóknir þessar hófust að nokkru
leyti þá um veturinn, eftir að þær höfðu
verið rækilega undirbúnar og síðan var
þeim haldið áfram allan siðastliðinn vet-
ur. Þeir, sem þátt tóku í rannsóknunum
eru nú nýkomnir heim til Danmerkur,
eftir 6 mánaða útivist á Persaflóa.
Það sem hér verður sagt frá þessum leið-
angri, er tekið eftir ,.Eshjergbladet“, en
þar birtist viðtal við skipstjórann á „Drot“,
eftir að hann var nýkominn heim.
Rannsóknirnar leiddu i Ijós að mikið er
af fiski í Persaflóanum og er þar um
margar fisktegundir að ræða. Einkum eru
það rækju- og sardinuveiðar, sem talið
er að Perslendingar munu koma til með
að stunda í framtíðinni. Af háðum þessum
tegundum er mikið í flóanum og eru hvort-
tveggja mjög stórar. Liklegt þykir, að bæði
rækjur og sardínur geti orðið ágæt út-
flutningsvara. En þar er einnig um ýmsar
aðrar fisktegundir að ræða, sem taldar eru
heppilegar til þess að húa úr þeim fiska-
hollur og ýmiskonar dósamat. Dr. Blegvad
hefir því lagt til við persnesku stjórnina,
að hún láti reisa niðursuðuverksmiðju i
Bandar Abas, og að þar verði eingöngu
soðnar niður ýmsar fisktegundir.
Skipið, sem notað var við rannsóknirnar,
er eign persneska ríkisins og stundar það
nú fiskveiðar. En einnig er í ráði að pers-
neska stjórnin láti smíða stórt nýtízku
fiskiskip í Danmörku og að allur úthún-
aður til þess verði keyptur þar. Það þykir
jafnvel ekki ósennilegt, að Persía kaupi
í framtiðinni fleiri báta frá Danmörku, en
það fer allt eftir því, hvort að reist verður
þar niðursuðuverksmiðja. Verði úr þeirri
framkvæmd og takist að vinna markað
fyrir niðursuðuvörurnar, (því að sennilega
tekur það langan tíma að kenna Persum að
eta fisk), þá er öruggt að bátunum fjölgar
þar, og að leitað verður eftir dönskum
skipstjórum til þess að stjórna fiskveið-
unum. Nokkrir danskir verkfræðingar
vinna nú austur í Persíu og hafa þeir í
kaup um 1100 kr. á mánuði, og er talið
liklegt, ef til þess kemur, að skipstjórar
verði ráðnir þangað, þá heri þeir ekki
minna úr býtum.
Einna verst féll leiðangursmönnum við
fæðið i Persíu og töldu að það liefði verið
óviðunandi að húa við það til langframa;
en þeir fengu send matvæli að heiman.
Að vetrarlagi er svipaður liiti þar og að
sumri til i Danmörku. En þegar leiðang-
ursmennirnir fóru þaðan var mjög farið
að hitna þar í veðri, og er þeir á heimleið-
inni sigldu yfir á eina, sem er á landamær-
um Persíu og Arabíu, þá var hitinn þar
37y2 stig í skugganum.