Ægir - 01.06.1938, Side 10
136
Æ G I R
Annað þing Farmanna-
r
og' fiskimannasambands Islands
var haldið í Reykjavik dagana 31. mai s. I. til
3. júní. Mættir voru á þinginu 21 fulltrúi, frá
alls 8 stéttarfélögum sjómanna. Á árinu 1937
höfðu 2 fagfélög sjómanna gengið í sambandið,
og voru það skipstjórafélagið Bylgjan á ísafirði
og Félag isl. loftskeytamanna.
Á þinginu voru rædd ýms sameiginleg hags-
muna- og áhugamál sjómanna, svo sem tillögur
um hyggingu væntanlegs sjómannaskóla fyrir
hinar ýmsu starfsgreinar á sjónum, endurbætur
á siglingalögunum, öryggismálin, útgáfa hiaðs
eða tímarits fyrir sjómenn, tiliögur um útgerð-
armál og nýjar veiðiaðferðir, um nýbyggingu
og innflutning fiskibáta, um siriðstrvggingar,
breytingartillögur um skipun sjódóms, um end-
urbætur síldarverksmiðjanna, vitamálin, kaup-
gjaldsmá! sambandsfélaga, umræður um vinnu-
löggjöfina, um ríkishafnsögumenn og vitavarða-
stöður, tillögur um sérstaka dagskrárliði i út-
varpinu varðandi sjómenn, tillaga um lögskipun
3. stýrimanns á ísl. fiskiskip, o. fl. o. fl.
Til stjórnarinnar var vísað:
1. Tillögu um vitavarðastöffar, þar sem til
þess var mælzt, að framvegis yrði fyrir því séð,
að sjómenn yrðu, að öðru jöfnu, látnir sitja
fyrir vitavarðastöðum, sem veittar kynnu að
verða.
2. Vitamálunum: Ályktun samþykkt um að
skora á ríkisstjórnina að verja framvegis öllu
vitagjaldi til eflingar vita- og sjómerkja-kerfa
landsins og reisa miðunarstöðvar í sambandi
við nokkra tilgreinda vita út um land.
3. Lögskipun 3. stýrimanns á isl. botnvörpu-
skip: Stjórninni var falið að beita sér fyrir því,
i sambandi við væntanlega endurskoðun sigl-
ingalaganna á Alþingi, að í bátsmannstarfið á
botnvörpuskipum stærri en 250 tn. brutto, verði
lögfestir menn með stýrimannsprófi.
4. Tillögu um talstöðvar i fiskibáta.
5. Endurskoffun siglingalaganna.
Kosnar voru milliþinganefndir til að athuga:
1. Lög um síldarverksmiðjur ríkisins.
2. Möguleika furir blaðaútgáfu af hálfu sjó-
manna.
3. Tiltögur um dagskrárliði útvarpsins varð-
andi sjómenn.
Ályktun var samþykkt um að skora á Alþingi
og ríkisstjórn að á næsta Alþingi verði sjó-
mönnum og útvegsmönnum veittur styrkur til
nýbygginga á 100—150 rúmlesta fiskiskipum með
Dieselvél og sé styrkurinn eigi minni en 25%
af kaupverði skipanna, enda séu skipin búin
þeim tækjum til fiskveiða að hægt sé að starf-
rækja þau allt árið. Ennfremur að Fiskveiða-
sjóð íslands verði séð fyrir nægilegu fé, svo
að liægt sé að lána allt að 60% af kostnaðar-
verði slíkra skipa.
Jafnframt skorar þingið á Alþingi og ríkis-
stjórn, að veita árlega innflutningsleyfi á fiski-
skipum til landsins, að minsta kosti sem svarar
linignun fiskiskipaflotans árlega og gæta þess
að þau skip, sem til landsins flytjast, fullnægi
eftirfarandi skilyrðum:
1. Að skipin séu það þénanleg að hægt sé að
starfrækja þau mestan hluta ársins.
2. Að járnskip séu eigi eldri en 12 ára og furu-
skip séu eigi eldri en 6 ára og eikarskip
eigi yfir 12 ára, enda fullnægi þau kröfum
þeim, er viðurkennd flokkunarfélög og
skipaskoðun rikisins setja á hverjum tíma.
í skólamáli stéttarinnar var samþykkt tillaga
um að beita sér eindregið fyrir þvi, að hafist
verði handa um byggingu væntanlegs sjómanna-
skóla hið allra fyrsta og að honuin verði val-
inn staður á Skólavörðulioltinu, eins og áður
hafði verið samþykkt af hinúrn einstöku starfs-
greinum sjómanna.
Stærsta skip heimsins.
Glasgow er miðstöð þungiðnaðarins i
Skotlandi. Meðfram henni rennur Chde,
fljótið sem hefir fleytt stærstu skipum
heimsins til sjávar. Sín livoru megin við
Clyde eru ólal skipakvíar og stærstu skipa-
smíðastöðvar veraldarinnar. Þar var „kon-
strueraður“ fyrsti gufukelillinn, sem sett-
ur var í skip, þar var einnig smíðaður
fyrsti járnbrautarvagninn og ótal fleiri
lilutir, sem samgöngutæknin á sjó og
landi hyggist á, hafa átt tilurð sína þar.
I nánd við eina skipasmiðastöðina við
Clyde gnæfir há steinsúla, sem sést lang-
ar leiðir að; hún er minnismerki vfir
Henry Bell, eiganda „Comet“, fjæsta gufu-