Ægir - 01.06.1938, Síða 11
Æ G I R
137
skipsins.er notað var til farþegaflutninga.
Ótal fleiri merki eru þar, sem minna á
hinar merkilegustu breytingar í sögu
samgangna á landi og sjó.
Fjöldi herskipa og bryndreka eru nú í
smíðum í skipasmíðastöðvunum við Clyde,
þar eru einnig ótal flutninga- og farþega-
skip, sem innan skamms verður lileypt
af stokkunum. En mest ber þó þar á skipi
einu, sem rent verður niður á Clyde 27.
september næstkomandi og drottningin
sjálf á að gefa því nafn, silt eigið nafn,
„Queen Elizabeth“. Þetta er stærsta skip
heimsins og stærra skip liefir aldrei verið
smíðað. Það er 85 000 smálestir brutto, eða
3765 smál. stærra en „Queen Mary“. Það
er 1031 fet á lengd, eða 13 fetum lengra
en „Queen Mary“. Aðeins stýrið, á þessu
risaskipi, vegur 120 smálestir. í því eru
12 gufukatlar allir mjög stórir. Farþega-
rýmið er stærra og fullkomnara en á
nokkru öðru skipi og hefir reynsla sú,
sem fengizt liefir á „Queen Mary“ og
„Normandie“ orðið til þess að gera að-
stöðumun á milli þeirra og „Queen Eliza-
beth“. Kvikmyndaskáli er ekki aðeins á
fyrsta farrými heldur einnig á því þriðja.
„Queen Elizabeth“ teknr alls 2410 far-
þega, eða um 300 manns fleiri en alla í-
búa Neskaupsstaðar og Seyðisfjarðar til
samans. „Queen Elizabeth“ á að geta farið
á 7 sólarhringum á milli Southamton í
Englandi og New York, með viðkomu í
Cherbourg.
Systurskipin „Queen Elizabeth“ og
„Queen Mary“, „drottningar Atlantshafs-
ins“, gnæfa eins og hallir við öldur hafs-
ins. Stolt og metnaður Bretlands er falið í
stærð þeirra og dýrleik, þau eru einskon-
ar vottorð þeirrar tjáningar, að Bretar
séu voldugasta siglingaþjóð heimsins.
Frá störfum
Slysavarnafélagsins.
Ritstjóra „Ægis“ var nýlega litið inn i
skrifstofu Slysavarnafélagsins og sá þar
stóran uppdrátt af íslandi, eða réttara sagt
strandlengju Islands, en með fram strönd-
um landsins gat að líta fjölda skipa, en
þó flest á svæðinu frá Kúðafljóti og vest-
ur að Snæfellsnesi. Myndir af skipum
þessum eiga að sýna öll þau skip, sem
menn vita að hafi farizt eða strandað við
ísland síðasll. 10 ár, eða siðan Slysavarna-
félag ísland var stofnað. Skipin eru sett
á kortið, þar sem talið er að þau liafi far-
izt. Upp úr sumum þeirra stendur rauð-
ur strókur og merkir það, að þau liafi
brunnið. Öll eru skipin tölusett og getur
maður séð hvaða skip hvert er, með því
að gá að livaða tala stendur við það, og
leita síðan að þeirri tölu í skipalistanum,
sem ritaður er á mitt kortið, og fæst þá
svar við þvi hvað skipið hefir heitið og
liver skráningarstaður þess liefir verið,
þegar það fórst. Kort þetta er gert af
mestu list og veitir hverjum sem skoðar
það mjög mikinn fróðleik um skipstöp
við strendur ísl. síðastl. 10 ár. Það skýrir
betur en orð fá gert hve brýn nauðsyn
er á auknum slysavörnum og hvar þeirra
er mest þörf. Kort þetta er gert í tilefni af
10 ára afmæli Slysavarnafélags Isl. og
er teiknað af Bergsveini, syni Jóns Berg-
sveinssonar, erindreka félagsins.
Slysavarnafélagið gekkst fyrir þeirri ný-
breytni síðastliðið haust, að sjómenn gætu
fengið ókeypis kennslu í sundi, lífgun og
ennfremur björgunarsundi. Fyrstu nám-
skeiðin liófust í október, en þau voru alls
lialdin þrjú. Aðsókn var mikil að nám-
skeiðunum, og lærðu 75 sjómenn sund og
lífgun og 20 björgunarsund og lífgun.
Ráðgert var að halda slík námskeið
haust og vor, en það kom í ljós nú á