Ægir - 01.06.1938, Síða 13
Æ G I R
139
Fréttir úr verstöðvunum.
24. júní.
Úr Ólafsfirði:
Þar var róið stöðugt allan maimánuð og
nokkuð af þessuin mánuði og var afli dágóð-
ur. Yfirleitt hefir afli verið allgóður i ver-
stöðvunum norðanlands á þessu vori, eða
nokkru meiri en i fyrra.
Prá ísafirði:
Rickjuverksmiðjaii hefir starfað með all-
miklum krafti það sem af er þessu ári og er
næstmesti vinnuveitandi á staðnum. Um síð-
ustu mánaðarmót hafði verksmiðjan greitt 35
þús. kr. í vinnulaun frá áramótum, keypt hrá-
efni fyrir um 40 þús. kr. og selt til útlanda
rækjur fyrir um 75 þús. kr. Hvað innanlands-
salan hefir numið mikið á þessum tíma, veit
blaðið ekki. í byrjun júni átti verksmiðjan
allmiklar birgðir fyrirliggjandi.
íshúsflag ísfirðiiuja hefir fest kaup á nýju
hraðfrystitæki, sem Benedikt Gröndal, for-
stjóri, hefir fundið upp. Frá tæki þessu var
sagt greinilega í aprílblaði „Ægis“.
Tvö mj útgerðafélög hafa verið stofnuð á
ísafirði. Anna, þeirra heitir „Muninn“ og
hefir það nú undirskrifað samninga við Mar-
selius Bernharðsson, skipasmið á ísafirði, um
smíði 2ja vélbáta 15 smál. Einnig hefir fé-
lagið fest kaup á 24 smál. nýsmíðuðum vélbát,
og er hann smíðaður af Bárði G. Tóinassyni.
Hitt útgerðarfélagið heitir „Njörður“ og hefir
það samið við Bárð G. Tómasson, skipaverk-
fræðing, um smíði 5 nýrra vélbáta 14 smál.
að stærð. Tveir af bátunum eiga að vera til-
búnir 1. nóv. n. k., en hinir þrír fyrir fyrsta
nóv. 1939.
Vélar samvinnubátanna hafa verið endur-
hyggðar. Eru þær upphaflega byggðar sem 90
liestaflavélar, en eiga eftir breytinguna að jafn-
gilda 110 h. a. vélum. Sænskur maður, J. John-
son, frá Svenska Maskinverken í Sudertálje,
stjórnaði breytingunum á vélunum. Stjórn sain-
vinnufélagsins fannst þessi leið heppilegri en
að kaupa nýjar vélar, en það var talið orðið
nauðsynlegt vegna samkeppninnar á síldveið-
unum.
Þegar isfirzku sjómennirnir komu heim af
síldveiðunum síðastl. sumar, fór stór hópur
hinna yngri manna inn í Reykjanes til sund-
náms. Ðvölin i Nesinu varð þeim liin ánægju-
legasta. Þegar svo vetrarvertíðinni lauk, fengu
sjómenn Reykjanesskólann aftur til að standa
fyrir sundnámskeiði fyrir sig. Útlagður kostn-
aður þeirra fyrir hálfsmánaðardvöl i Reykja-
nesi er aðeins fargjaldið til og frá, 5 krónur.
Að öðru leyti sömdu þeir um að vinna nokkr-
ar stundir á dag fyrir dvalarkostnaðinum.
Á annan í hvitasunmi efndu sjómenn þar til
mikilla hátíðahalda og voru þau fjölsótt og
fóru vel fram. Það er ætlun isfirzkra sjómanna
að halda Sjómannadag ár hvert.
Tótf vélbátar frá ísafirði verða við herpi-
nótaveiðar í sumar, en togarinn Hávarður ís-
firðingur stundar karfaveiðar í sumar og legg-
ur upp á Sólbakka.
Bolungarvík:
Þar hefir verið róið allan þennan mánuð
og aflast vel. Einnig hefir verið róið lir Hnífs-
dal og fleiri stöðum við Djúp og allsstaðar
verið góð veiði.
Hvalveiðar
stunda nú þrir hátar frá Tálknafirði. Byrj-
uðu þeir veiðar 16. maí og voru búnir að fá
22 hvali 20. júní. Um miðjan mánuðinn var
búið að flytja út 100 smál. af frystu hvalkjöti.
Frá Patreksfirði:
Togararnir þar fóru á karfaveiðar 17. og
19. maí og hefir afli hjá þeim verið heldur
rýr tii þessa. Sæmilegur afli hefir verið á
trillubáta.
Síldveiðin:
Seinast i maí sá færeyska fiskiskipið Polar-
stjarnan mikla sildartorfu við Rauðunúpa.
Skipið kastaði síldarnetum í torfuna og fekk
2000 síldar. Þetta var fyrsta fregnin um að
síld sæist vaða á þessu ári.
Fyrir atbeina Síldarútvegsnefndar lét bátur
frá Siglufirði reka 18 sjómílur norðaustur af
Siglunesi 7. júní. Fekk hann litið eitt af sild
og reyndist fitumagn hennar 9,5%.
Garðar úr Vestmannaeyjum fór fyrstur háta
norður, héðan að sunnan, og hélt liann af
stað 4. júni. Upp úr því fóru skipin að tin-
ast norður eitt og eitt, en flest fóru þau laug-
ardaginn 11. júni. Þorfinnur fór norður 15.
júní, og var hann fyrstur af togurunum. Alls
munu 24 togarar stunda sildveiðar i sumar
og eru það 8 færri en í fyrra. Fyrsta hcrpi-