Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.07.1939, Qupperneq 3

Ægir - 01.07.1939, Qupperneq 3
Æ u I R MÁN AÐAR.RIT FISKIFÉLAGS í S L A N D S 32. árg. Reykjavík — júlí 1939 Nr. 7 íslenzkur útgerðarmaður í Hull. Samtal við Jón Oddsson. Jón Oddsson Jón Oddsson, útgerðarmaður í Hull, hefir dvalið hér heima nokkurn tíma ásamt konu sinni. Jón hefir verið skip- stjóri í Englandi í fjöldamörg ár, en rekur þar nú útgerð og nýtur mikils trausts og virðingar sem enskur borg- — Ritstjóri Ægis hitti hann að máli °g átli við hann eftirfaraiuli samtal: Hvenær byrjuðuð þér sjómennsku á enskum togurum? spyrjum vér Jón. — Það.var í nóvember 1908. Eg átti þá beimá á ísafirði. Þangað kom þá enski togarinn „Volante“ frá Grimsby með veikan mann, sem liann lagði þar á land. Réðist ég á skipið í hans stað og var ég þá 19 ára gamaU. A þessum logara var ég í 8 mánuði. — Snemma sumars 1908 strandaði „Volante“ í nánd við Vest- mannaeyjar. Við gátum þó komið logar- ánum til Eyja og þangað kom björgun- arskipið „Svafa“, ér þá var hér, og dældi úr lionum sjónum. Að því húnu héldum við til Reykjavíkur og lögðum „Volante“ inn á Kleppsvik, en þar fór fram á hon- um bráðabirgðaviðgerð, svo að við gæt- um haldið út að fiska og síðan heim til Englands. Þegar þangað kom, fór ég af „Volante“, því að þá átti að fara fram á honum viðgcrð, sem tók langan tíma. Var ekki gjörólíkt að vera á togurum þá eða nú? — Jú, það er mjög mikill munur. Nú eru skipin miklu stærri og hetur úthúin en þá þekktist. Fyrsta árið mitt í Eng- landi var gasið að hyrja að ryðja sér lil rúms til lýsingar á togurum. Annars voru aðeins nolaðir olíulampar og glóðarljós. Glóðarljósin voru aðeins noluð lil að vinna við á dekkinu, og voru þau lijá sumum útbúin þannig, að sett voru kol í fötu, þ. e. a. s. á járnlilemma, sem voru misjafnlega liált í fötunni og voru göt á öllum þeirra og einnig á fötuhotninum. Var síðan kveikt í kolunum og myndaðist þarna heilmikil glóð. Þannig var nú lýs- ingin þá. — Veiðarfærið, þ. e. a. s. boln- varpan, hefir ekkerl breyzt, nema hvað

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.