Ægir - 01.11.1939, Qupperneq 14
248
Æ G I R
2. Enginn má gangast inn á að kaupa eða
selja, í Newfoundlandi, neinn þurrkaðan salt-
þorsk, nema á þeim grundvelli, að ákveðið
verð sé greitt fyrir fisk af hverjum flokki,
sem þessi rcglugerð kveður á um, hvort held-
ur er að rœða um harðverkaðan eða léttverk-
aðan fisk.
3. Þrátt fyrir ákvœði 2. greinar þessarar
reglugerðar, má sá fiskur ganga kaupum og
sölum, sem seljandi hefir áður afhent kaup-
anda, og sem hefir, þegar afhending fór
fram, verið flokkaður af fiskimatsmanni í þá
flokka, sem reglugerð þessi skipar fyrir um,
og þá strax verið pakkað í ílát, merktur eða
brennimerktur með orðum, er gefa til kynna,
að hann sé af einhverri þeirri tegund, stærð
og gæðum, sem viðurkennd er í útflutnings-
verzluninni, gegn verði, sem er hæfilegt fyrir
fisk af þeirri tegund, stærð og gæðum, er
merkið eða brennimarkið gefur til kynna.
4. Ekki má fara fram sala og afhending á
fiski, nema öðruvísi sé kveðið á um i þessari
reglugerð, nema því aðeins, að fiskurinn hafi
um leið og afhending fer fram, verið flokk-
aður af fiskimatsmanni i þá flokka, sem þessi
reglugerð ákveður.
5. Þrátt fyrir ákvæði 4. gr. þessarar reglu-
gerðar, má, án frekari flokkunar, afhenda
fisk, sem seljandi hefir áður afhent kaupanda,
og sem hefir, þá er afhending fór fram, verið
flokkaður af fiskimatsmanni í þá flokka, sem
reglugerð þessi ákveður og hefir þvínæst þeg-
ar í stað verið pakkað i ílát og merktur eða
brennimerktur með orðum, er gefa til kynna,
að hann sé af einhverri þeirri tegund, stærð
og gæðum, sem viðurkennd eru í útflutnings-
verzluninni, eftir að sala hefir farið fram.
(i. Ekki má flokka þurrkaðan saltþorsk
nema á matshorði, og skal fiskimatsmaðurinn
handleika og skoða hvern fisk út af fyrir sig
við flokkunina.
7. Sérhverjum eftirlitsmanni, sem skipaður
er af Fiskimálanefnd (Newfoundlands Fish-
eries Board) skal, hvenær sem er á sann-
gjörnum tíma, vera lieimill aðgangur að
hverjum þeim slað, þar sem fiskur er keypt-
ur, seldur, geymdur, pakkaður, merktur eða
brennimerktur. Ennfremur skal eftirlitsmanni
vera heimilt að vera viðstaddur flokkun,
pökkun, merkingu eða breniiimerkingu á öll-
um fiski eða fiskpökkum, og skal sérhver
fiskimatsmaður, eða annar sem feest við slíkt,
fara eftir fyrirmælum slíks eftirlitsmanns við
flokkun, pökkun, merkingu eða brennimerk-
ingu. Sé eftirlitsmanni neitað um aðgöngu að
einhverjum þessháttar stað, þá er það brot á
reglugerð j)essari af hálfu eiganda staðarins
eða þess, sem hefir umráð yfir honum. Ef
fiskimatsmaður eða sá annar, er við slíkt
fæst, neitar eða vanrækir að fara eftir fyrir-
mælum eftirlitsmanns, þá er það brot á
reglugerð þessari og getur það varðað fislci-
matsmann missi á löggildingu hans.
8. Þurrkuðum saltþorski skal skipla í eftir-
farandi flokka:
a) Harðverkaðan.
b) Léttverkaðan.
9. Harðverkaður fiskur skal metinn í flokka
eftir eftirfarandi reglum:
a) Úrvalsfiskur (Choice) : (Spanskur).
Gallalaus fiskur, fremur harðþurrkaður, sér-
staklega þykkur, bliknaður, holdið nokkuð
glært, slétt yfirborð, vel flattur, fullkomlega
hreinn á baki og framhlið, og laus við blóð-
bletti, kekki, lifur, garnir eða salt á framhlið.
b) Markaðshæfur fískur (Mercliantable) :
Gallalaus fiskur, sæmilega þykkur, harð-
þurrkaður, slétt yfirborð, vel flattur, full-
komlega hreinn á baki og framhlið, laus við
blóðbletti, kekki, lifur, garnir, eða of mikið
salt á framhlið.
c) Madeira: Gallalaus fiskur, harðþurrk-
aður, en jafnast þó ekki á við Merchantable
að gæðum, en má þó ekki vera of saltur, brot-
inn, sólbrunninn, slepjaður, dökkbrúnleitur
eða á annan hátt gallaður. Má vera dálítið
hrjúfur að útliti.
d) Vestur-Indiu fiskur (West India): Harð-
þurrkaður fiskur, sem ekki fellur undir neinn
hinna ofangreindu flokka.
e) Fiskur, sem er að öðru leyti eins og
ofangreindir flokkar, en ekki fullkomlega
þurrkaður skal kallaður Rakur Úrvalsfiskur
(Damp Choice,) Rakur Markaðshæfur (Damp
Merchantable,) Rakur Madeira (Damp Ma-
deira) eða Rakur Vestur-India fiskur (Damp
West Iridies), eftir því sem við á.
10. Stærðaflokkun á öllum grunn- og djúp-
miðafiski skal vera sem hér segir:
a) Handfiskur (Tomcods): Þorskur frá 8
til 12 þumlungar að lengd, að báðum tölum
meðtöldum.