Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1940, Blaðsíða 16

Ægir - 01.11.1940, Blaðsíða 16
242 Æ G I R Dr. Bjarni athugar aflann. svo skýrt, að maðnr fann á ræðum hans, tivað þrauthugsað þetta efni var og þrungið þekkingu, eu oft fór svo, að við gleymdum stað og stundu, og áliðið var á hvíldarthnann, þegar liætl var samtal- inu. Dr. Bjarni var listhneigður maður, teiknaði hann oft landslagið, sem blasti við á hinum ýmsu fiskimiðum, og er þar að finna mikinn fróðleik, sem iiann rit- aði niður í sambandi við þetta riss. Þarna voru uppdrættir af l)e/lu miðun- um okkar, togarmanna. Kom þá að gagni hans framúrskarandi landafræðiþekk- ing, því að livern linúk og hverja bungu þekkti hann með nafni, hvar sem komið var að landi. Oft fórum við kringum Dr. Bjarni með skipstjóra og skipverjum á „Skallagrími“. landið og alstaðar þekkti liann hvert fjall, hvort heldur ]>að var fram við sjó eða inn í miðju landi, og er þetta óvenju- legt minni. Dr. Bjarni lét sér mjög annt um að breyta orðskrípum þeim, sem hafa verið sett á sjókort okkar, er við koma Islandi. Og eru það að mestu lians verk, að nú eru komin íslerizk nöfn, l>æði örnefni og önnur nöfn á landi, og einnig á ála og grunn alll í kringum Island. Á hann miklar þakkir skyldar fyrir það, eins og svo margt annað. Guðm. Jónsson, skipstjóri. Ég sá náttúrugripasafnið í fyrsta sinni vorið 1902, er ég gekk undir inntökupróf í 1. hekk Latínuskólans. Þá var safnið í gamla Doktorshúsinu. Vakti safnið þá enga sérstaka athygli lijá mér, enda þótt mér þætti ]>að all nýstárlegt og laðaðist ég ekkert verulega að þvi fyrst í stað. Síðar, þegar safnið var komið i önnur liúsakynni, við Vesturgötu, ])ar sem Verzlunarskólinn var seinna, fór ég að venja komur mínar þangað á sunnu- Dr. B.jarni Sæmundsson og náttúrugripasafnið.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.