Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1947, Page 14

Ægir - 01.03.1947, Page 14
76 Æ G I R sérréttindaákvæði fyrir fislcibátaeigendur í deildunum þannig, að þeir hafa 5 atkvæði fyrir fiskiskp hvert, en allir aðrir einungis 1 atkv. Þetta var gert í því skyni að laða alla útgerðarmenn landsins í fiskideildirn- ar. — Reynslan mun þó sií, enn sem kom- ið er, að ekkert gengur betur að fá útgerð- armenn til starfa í fiskideildunum en áður. Mín uppástunga nú er í stuttu máli sú, að Landssambandi útgerðarmanna, sjó- mannasamtökunum innan Alþýðusam- bandsins og Farmannasambandinu verði, hvoru í sínu lagi, gefinn kostur á að kjósa fulltrúa til Fiskiþings. — Ekki tel ég þó ráð að fjölga fiskiþingsfulltrúum. Mætti þá leggja fulltrúakosningu Reykjavíkurdeild- ar niður, því óefað yrðu flestir fulltrúar frá umræddum félagasamtökum, búsettir þar eða í nágrenni borgarinnar. — Enn frem- ur mætli hugsa sér, að fjóðrungsþingin gæfu eftir sinn fulltrúann hvert, ef félaga- sambönd þessi vildu ganga til móts við fjórðungana með því, að kjósa sinn full- trúann úr fjórðungi hverjum. Næði slíkt fyrirkomulag fram að ganga, þá væru þessir aðiljar þar með sameinaðir um eitt þing' fiskveiðamála og farmanna í stað þess sem nú er verið að bauka við ])ing af sama tagi í tvennu eða þrennu lagi. Fiskiþing skyldi og lialda árlega, en liafa það styttra en nú, eina viku og ekki lengur. Mér virðist engin bót að löngum þess háttar samkomum með ítarlegum nefndar- úlitum og greinagerðum og öðru slíku í lík- ingu Alþingis, af þvi þessar samkomur bafa ekkert vald til að fylgja þeim eftir. — Fiskiþingið gerir aðeins að semja tillögur og áskoranir til Alþingis; fjárhagsáætlun þess undanskiiin. — Stuttar glög'gar tillög- ur, án of langra skýringa, virðast mér jafn- líklegar til áhrifa. Fjárhagáætlun Fiskiþings ætti ekki, með góðum undirbúningi Fiskifélagssljórnar, að taka marga daga. Hins vegar er það of silalegt og úrelt fyrirkomulag, að halda Fiskiþing einungis annað livort ár. Skipasmíðar fyrir Norðmenn. Um síðustu áramót áttu Norðmenn í smíðum eða höfðu gert samninga um smíði á alls 405 skipum, samtals 1460 þús. rúm- lestir. Hér eru eingöngu talin þau skip, sem eru stærri en 100 rúmlestir. Af þessurn skipmn er 81 tankskip, alls 661 þús. rúni- lestir. Norðmenn smíða sjálfir 151 skip, alls 203 þús. rúml., þar af eru 93 vélskip, 109 ])ús. rúml. og 58 gufuskip, 93 500 rúml. Er- lendis hafa Norðmenn samið um smíði á 254 skipum, 1 260 þús. rúml. Skip þessi skiptast á eftirfarandi lönd: Svíþjóð 123 skip, 780 þús. rúml., Danmörk 16 skip, 97 þús., rúml., Bretland 87 skip, 297 þús. riunk, Holland 8 skip, 44 þús. rúml., Ítalía 17 skip, 40 500 rúml. og Kanada 3 skip, 5700 rúml. Um siðustu áramót var verzlunarfloti Norðmanna 1605 skip, alls 3 226 520 rúm- lestir. Að lyktum vil ég biðja Ægi að flytji1 sljórnendum og' öllum starfsmönnuiu Fiskifélagsins beztu þakkir fyrir sam- starfið undanfarinn aldarfjórðung. Eink- anlega vil ég tjá alúðarþakkir Arnóri Guð- mundssyni skrifstofustjóra, er ég tief livað mest átt saman við að sælda þessi árin, varðandi skýrslusöfnun og fleira. — Tel ég liann einstakan mann í sinni röð. — Hann veit allt um þessi mál, þekkir hvern bát, og man flest, sem um er spurt, og leysir jafnan úr spurningum á augabragði, hvort heldur er í simtali eða viðtali á skrifstofunni. og afgreiðir eða hlutast til um að öll er- indi séu skjótt afgreidd. — Arnór tók við störfum lijá Fiskifélaginu fáum árum eftir að ég gerðist erindreki, svo að samstarf okkar er æði langt orðið.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.