Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1947, Blaðsíða 24

Ægir - 01.03.1947, Blaðsíða 24
86 Æ G I R Kol eða olía. Grein sú, seni hér fer á eftir, er ])ýdd úr enska tímaritinu The Fishing News, en höfundur hennar er W. R. Gordan, sem er meðlimur í stofnun, er Iieitir „Institute of Fuel“. Greinin er nokkuð stytt í þýðingunni. Bráðlega mun koma að þvi, að hætt verð- ur að nota kol til þess að kynda undir skips- kötlum. Eftir nokkur ár mun verða hætt að framleiða skipakol. Nýjustu tölur um skipa- smiðar, þótt þær séu að visu ekki full- komnar, sýna, að olian er að verða ofan á i haráttunni milli kola og olíu um yfirráðin á höfunum. Brezki kaupskipaflotinn er nú um 13 500 þús. brúttó rúmlestir, þ. e. að segja skip yfir 500 rúml. Af þessum skipastól eru um 0 milljónir rúmlesta ýmist vélskip eða skip, sem brenna oliu í stað kola. Af nýbygging- um þeim, sem nú eru framkvæmdar af brezkum skipasmíðastöðvum, eru um 87 af liundraði af þesari gerð og um 60 af hundr- aði af þessum skipum eru vélskip. Allt mælir með því, að þessi þróun haldi áfram. Annars staðar í heiminum er sömu sög- una að segja. Af því nær 600 skipum, sem nú er verið að smíða víða um heim og sem eru samtals 1 700 þús. rúmlestir, munu um 400 verða vélskip og aðeins 174 eimskip, og af eimskipunum mun fjöldi brenna olíu. Á tímabilinu milli heimsstyrjaldanna var greinilegt, að þróunin gekk í þá átt, að olia kæmi í stað kola, en nú, þegar svo mikið er byggt af skipum vegna hins gífurlega skipastjóns á styrjaldarárunum, verður þessi þróun enn þá örari. Arið 1914 voru notuð kol í því nær 44 milljónum rúmlesta af skipum, og voru þau um 89 af hundraði af kaupskipastól heims- ins, en árið 1939 var rúmlestatala kola- skipanna aðeins 31 milljón rúmlestir, eða minna en 45 af hundraði. Á sama tima jókst hlutfall þeirra skipa, sem brenndu olíu, úr 3 af hundraði upp í því nær 30 af hundraði, þ. e. gufuskipa, og mótorskipin úr 1 fí hundraði upp i 25 af hundraði. Á sania límabili minnkaði hluti seglskipanna úr 8 af hundraði i rúmlega 1 af hundraði. Hvers vegna vinnur olían á? Spurningin um það, hvort nota skuli olíu cða kol ákvarðast eingöngu út frá því sjón- armiði skipaeigandans: hvort er ódýrara? F.f miðað er við smálest af kolum og smá- lest of olíu, þá munu kolin enn þá vera ódýrari hér í landi, en mörg skip sigla til landa, þar sem olía er ódýr, t. d. þau, sem sigla til landa við Karíbahafið og austan- vert Miðjarðarhaf. Olian liefur einnig um 50 af hundraði meira hitagildi lieldur en meðal skipakol. En olían hefur einnig aðra kosti frá sjónarmiði útgerðarmannsins. Hún er i alla staði hreinlegri í meðförum og það þýðir, að minni óhreinindi koma á og * skipið, en það leiðir aftur af sér minna við- hald. Mikið minna umstang er við það að koma olíu um borð i skip heldur en kolum, þar sem olíunni er aðeins dæll í geyma í skip- inu, sem má koma fyrir í hinum tvöfalda botni þess. Með því móti er notað rúm, sem að öðrum kosti væri ónothæft. Ivolin aftur á móti þurfa að vera nær kötlunum og í flestum tilfellum þurfa þau að liggja hærra en ketilrúmið. Skip, sem brenna olíu, geta þar af leiðandi haft meira rúm fyrir flutn- ing heldur en skip af sömu stærð, sem brenna kolum. Um eitt skeið höfðu menn þá von, að kol mundu verða notuð áfram í vöruflutninga- skipum og skipum, sem sigla með strönd- um fram, en hin tvöfalda krafa um meiri hraða og færri menn á hverju skipi gerir það að verkum, að einnig þessar tegundir af skipuni munu sennilega fá dieselvélar. Nú er svo komið, að krafizt er 15 og jafnvel 17 mílna hraða fyrir hin stóru flutninga- skip. Að því er snertir kostnaðinn þá má svo fara, að nýjasta þróun á þessu sviði, þ- e. með tilliti til skipavéla, muni leiða af sér

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.