Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.1947, Qupperneq 16

Ægir - 01.03.1947, Qupperneq 16
78 Æ G I R 1946, „Statistical Year-Book of the League of Nations 1941—42“): Japan (árið 1936) ........ 3 622 000 tonn Ivorea (árið 1938) ........ 1 759 000 — U. S. A. ásamt Alaska (ár- ið 1939) .............. 1 938 000 — Bretland (árið 1938) ..... 1 600 000 — Noregur (árið 1939) ...... 982 000 — Sú aukning fiskveiðanna, sem ráðgerð er á næstu árum, mun að miklu leyti eiga rót sína að rekja til þeirra landauka, er Sovét- ríkjunum hafa bætzt síðan fyrir strið. í vestri hafa bætzt við Eystrasaltslöndin ásamt Memel (Kalipeda) og Königsberg (Klainingrad). Að vísu liefur ekki enn þá verið gengið endanlega frá landamærunum í vestri, en á Potsdam ráðstefnunni var ákveðið, að Sovétríkin skyldu fá Königs- berg. í norðri hefur bætzt við Petsamo- svæðið. í suðri hefur bætzt við landssvæði, er áður tilheyrði Rúmeniu (Bessarabíu o. l'h), og lengist þar með strandlengja Sovét- ríkjanna við Svartahaf alit að Dóná. í austri hefur bætzt við Suður-Shakalin og Kuril- eyjar, en þar eru auðug fiskimið. Önnur ásta'ða til aukningar fiskfram- leiðslunnar er sú, að auka á talsvert fiski- flotann. Og enn fremur er ætlunin að auka mjög tækni við framleiðsluna. 1 styrjöklinni biðu fiskveiðar Sovétríkj- anná mikið tjón og dró mjög úr framleiðsl- unni. Eins og áður segir er þó gert ráð fyrir, áð 1947 verði framleiðslan orðin eins mikil og fyrir stríð. Veiðin 1946 hefur verið áætluð 1 200 000 tonn, eða rúmlega það (grein í Izvestia 5. október s. 1.), og er það talsverð aukning frá síðasta ári. Eins og fyrr segir á fiskframleiðslan árið 1950 að hafa aukizt um 50% frá árinu 1940. Við austurstíönd Sóvétríkjanna á \eiðin að aukast um 135%, en í vesturhér- uðunum 28%. Þriðjungur fiskafla Sovét- ríkjanna 1950 á að veiðast við áilstur- ströndina. Sjávarútvegur ríkisins er rekinn af ótal fyrirtækjum, svo nefndum fiski-„kombinöt- um“. Fiski-„kombinöt“ á ákveðnum svæð- um heyra síðan undir yfirstjórnar fiski- ,,hrings“ (,,trest“) svæðisins. Þannig er til „Krímsfiskihringurinn“, „Ural-Kaspiski liskihringurinn“, „Volga-Kaspiski fiski- hringurinn" o. s. frv. Hringarnir munu siðan heyra beint undir fiskimálaráðu- neytin (austur- eða vestur). Togaraveiðar í Norðurhöfum. Veiði i Barentshafi og Hvitaliafi á að aukast mjög á næstu 5 árum. í blaðaviðtali 4. apríl s. 1. sagði Ishkov fiskimálaráðherra, að veiði á þessum slóðum ætti að aukast um 130% á næstu 5 árum, miðað við afla fyrir stríð. Sennilega er þetta þó of liá tala. Afl- inn kvað eiga að verða þarna um 500 000 tonn árið 1950. Þessi aukning aflans á að fást að mestu með aukningu togaraflotans og aukinni tækni. Ætlunin mun vera að tvöfalda tog- araflotann á næstu 5 árum á þessum slóð- um. Aðalútgerðarstaðurinn við norðurströnd- ina er Murmansk. Þar er togaraútgerðin að aukast um 150% frá því fyrir stríð (1939). Gert er ráð fyrir, að árið 1950 verði þar dag- lega við löndun fiskjar 25—27 togarar, og auk þess verði a. m. k. 30 togarar á sama tima í viðgerðarstöðvum til eftirlits og viðgerða. Stækka á höfnina í Murmansk og auka þar mjög tækni. Frystingu fisks á að tvö- falda þar, og fjórfalda flakaframleiðslu frá því, er var fyrir strið. Niðursuða á að auk- ast; þar um 50%. Arið 1950 á Murmansk að framleiða 125% meiri fiski en fvrir slríð, og auk þess á fjölbrevtni í vinnslu fisksins að aukast mjög. — Um 20 tegundir fisks kváðu venju- lega berast þar að landi. Einhver útgerð mun vefa í Petsamo, er nú tilheyrir Sovétríkjunum. Rætt er um að stofna nýjar útgerðarstöðvar á Norður- ströndinni. í Eystrasalti mun veiði eiga að aukast á næstu 5 árum Um 70% frá því, sem var fyrir stríð. Þar hafa bætzt við mikilsverðar útgerðarhafnir eins og áður er minnzt á.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.